Ingileif Miðflokkshrellir á flótta vegna transbókar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Áhlaup Viðreisnar gegn aðild Miðflokksins að meirihlutasamstarfi í Reykjavík dregur dilk á eftir sér. Daginn eftir að talið var upp úr kjörkössum, og ljóst að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur höfðu til samans meirihluta, upphófst verulegur fjöl- og samfélagsmiðlahávaði viðreisnarfólks um að ekki undir neinum kringumstæðum mætti Miðflokkurinn fá aðild að stjórnun borgarinnar.
Ingileif Friðriksdóttir aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar reið á vaðið með Vísisgrein sunnudagskvöldið 17. maí. Til að krydda málflutning sinn um að Miðflokkurinn væri óstjórntækur ræddi Ingileif ósk foreldra barns í Vesturbæjarskóla um undanþágu frá transfræðslu. Tilfallandi vék að tilraun Ingileifar til að smána foreldra sem ekki lifa i hinseginheimi:
Ingileif aðstoðarmaður ráðherra telur fráleitt að virða óskir foreldra. Allir skuli steyptir í sama hinseginmótið. Ekkert val, ekkert frelsi. Aðeins valdboð að ofan.
Út frá eðlilegri ósk foreldra um að barn þeirra fái að sitja á bókasafni Vesturbæjarskóla á meðan sérviskufræðslu Samtakanna 78 að haldið að nemendum spinnur Ingileif aðstoðar sögu um að Miðflokknum eigi að halda utan meirihlutasamstarfs í Reykjavík.
Líkt og hinseginfólkinu er tamt snýr Ingileif aðstoðarmaður hlutunum á hvolf. Mannréttindi eru að hafa val. Sérviskan um mörg kyn og að sumir fæðist í röngum líkama er fárra en ekki allra. Skólayfirvöld í Reykjavík hafa hingað til virt að vettugi rétt þeirra mörgu en hampað sérvisku Samtakanna 78.
Eftir Vísisgrein Ingileifar steig fram annað foreldrið, Atli Heiðar Gunnlaugsson, og útskýrði sína hlið málsins. Atli Heiðar benti á að Ingileif ætti fjárhagslegra hagsmuna að gæta í málinu, hún væri höfundur hinseginbókar sem kennd er í Vesturbæjarskóla.
Nútíminn lagðist í rannsóknarvinnu til að kanna hvort Ingileif bæri kápuna á báðum öxlum, þykist hugsjónakona en stundar sérhagsmuni. Og, jú, eftir tafir og undanbrögð viðurkennir skólastjóri Vesturbæjarskóla að bók Ingileifar er kennd í skólanum.
Ekki náðist í Ingileifi við vinnslu fréttarinnar, segir Nútíminn. Skiljanlega vill konan sem hóf Miðflokkseineltið eftir kosningar ekki láta ná í sig. Aðstoðarmaður formanns Viðreisnar gæti þurft að svara óþægilegum spurningum um tvöfalt siðgæði. Viðreisnarhinsegin er að þykjast heilagur en stunda síngjarnt undirferli. Hrella á daginn, græða á kvöldin.