Í fréttatilkynningu þess efnis segir að ástæðan sé hækkandi kostnaður frá nauðsynlegum þjónustuaðilum, þar á meðal Reiknistofu bankanna, sem sjái um tæknilega innviði fyrir fjármálafyrirtæki á Íslandi.„Þetta er erfitt en nauðsynlegt skref. Hlutfallslega valda þeir Indóar sem nota Indó aðallega erlendis hæstum kostnaði. Við teljum ekki sanngjarnt að þau sem nota Indó daglega beri þann kostnað. Með hóflegu gjaldeyrisálagi náum við áfram að bjóða mun betra gengi en hefðbundnir bankar,“ er haft eftir Tryggva Birni Davíðssyni, framkvæmdastjóra Indó.Samhliða breytingunum hækki Indó vexti á debetreikningum um 0,7 prósentustig, í 1,7 prósent. Markmiðið sé að bæta kjör þeirra viðskiptavina sem nota Indó fyrir sín daglegu fjármál.Þrátt fyrir breytinguna muni Indó áfram bjóða samkeppnishæf kjör, þar sem gjaldeyrisálag bankanna liggi á bilinu 2,5 til 3,0 prósent.„Indó leggur áherslu á að gjaldið sé eingöngu ætlað til að mæta raunverulegum kostnaði frá nauðsynlegum þjónustuaðilum en ekki til að skapa umframtekjur.“
Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ - Vísir