Icelandair þarf að greiða tveimur einstaklingum bætur vegna töluverðrar seinkunar sem varð á flugi sem þeir áttu bókað með félaginu. Seinkunin var tilkomin vegna tösku sem hafði verið innrituð í flugið og komið fyrir í töskurými en sá einstaklingur sem innritaði töskuna mætti ekki að brottfararhliðinu og fannst ekki.
Icelandair þarf að greiða bætur vegna dularfullrar tösku