Nái Icelandair ekki að gera samninga við Flugvirkjafélag Íslands áður en verkfall skellur á hefur það veruleg áhrif á flugáætlun Icelandair. „Á þessu stigi er þó ekki hægt að meta umfang mögulegra fjárhagslegra áhrifa verkfallsins á félagið,“ segir í yfirlýsingu frá Icelandair.
Flugvirkjafélag Íslands boðaði í dag ótímabundið verkfall sem nær til allra flugvirkja sem starfa hjá Icelandair. Það á að hefjast 00:01 þann 23. september.
Icelandair segist hafa lagt fram sanngjarnt og ábyrgt samningstilboð.
„Það er þó ljóst að aðila greinir verulega á um launaliðinn og hefur samninganefnd Icelandair því ítrekað lagt til við samninganefnd Flugvirkjafélagsins að fenginn verði óháður aðili til að skera úr um það ágreiningsmál, það er að aðilar ákveði í sameiningu að leggja málið fyrir samningsbundinn gerðardóm.“
Flugfélagið segist nú meta möguleg áhrif verkfalls á farþega. Komi til breytinga á flugáætlun hefur Icelandair samband. Fólk er hvatt til að tryggja að réttar tengiliðaupplýsingar séu skráðar inn í bókanir sínar.