Íbúi á Raufarhöfn hefur sent formlega kvörtun til Norðurþings þar sem kallað er eftir aðgerðum vegna slæmrar umgengni og uppsöfnunar lausamuna og gamalla ökutækja innan bæjarins.
Hann vísar til ákvæða í Lögreglusamþykkt Norðurþings sem heimila sveitarfélaginu að láta fjarlægja skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja, kerrur, vinnuvélar, báta og aðra lausamuni á kostnað eigenda að undangenginni viðvörun.
„Ég var að senda ábendingu á Norðurþing og krefjast aðgerða,“ segir í færslu íbúans.
Vísar til reglna sveitarfélagsins
Í ábendingunni er sérstaklega vísað til 19. greinar í þriðja kafla lögreglusamþykktarinnar. Þar kemur fram að sveitarfélaginu sé heimilt að láta fjarlægja yfirgefin ökutæki, tæki og aðra lausamuni eftir að eigendum hefur verið gefinn frestur til að bregðast við.
Jafnframt segir að ef heilbrigðisfulltrúi telji alvarlega hættu stafa af geymslu hlutar eða tækis sé heimilt að grípa til aðgerða án fyrirvara.
Hvetur aðra til að láta í sér heyra
Íbúinn birtir með færslu sinni myndir sem sýna fjölda gamalla ökutækja, vinnuvéla og ýmissa lausamuna á lóð í miðjum bænum.
Hann hvetur jafnframt aðra íbúa til að hafa samband við sveitarfélagið og láta skoðun sína í ljós.
„Mæli með að fólk mótmæli þessari umgengni. Því fleiri sem skrifa til þeirra því betra,“ segir hann.
Nútíminn hefur sent Norðurþingi fyrirspurn vegna málsins og mun birta svarið ef það berst.



