Í góðum jeppafíling í Mijas - MBL.IS

Í góðum jeppafíling í Mijas - MBL.IS

Í góðum jeppafíling í Mijas - MBL.IS

Það var ekki laust við að maður fyndi til smá ábyrgðar þegar manni var falið það skemmtilega verkefni að fara til Spánar og prófa nýjan sjöttu kynslóðar Toyota RAV4-jeppling, en framleiðandinn setti fyrstu bílana á markað árið 1994.

Ástæðan er auðvitað sú að bíllinn er geysivinsæll á Íslandi, sá fjórði mest seldi á síðasta ári, og söluhæsti bíll í heimi sama ár.

Förinni var heitið í beinu flugi með Icelandair til Malaga við Miðjarðarhafið en fyrir þá sem ekki þekkja þá teygir fjöldi þekktra áfangastaða sig eftir allri ströndinni og upp í fjöllin, staðir eins og Marbella, Granada og Torremolinos.

Svæðið gengur í daglegu tali undir nafninu Costa Del Sol sem margir sóldýrkendur þekkja mæta vel.

Bíllinn er rúmgóður og það var gott að sitja í …
Bíllinn er rúmgóður og það var gott að sitja í leðursætunum aftur í.

Sómdi sér vel í öllum aðstæðum

Í kynningum, sem haldnar voru í hæðunum fyrir ofan bærinn Fuengirola, í Mijas nánar tiltekið, lofaði Toyota meiri þægindum, bættum aksturseiginleikum og aukinni skilvirkni á sveitavegum, í langferðum og á götum borga.

RAV4 var í boði til reynsluaksturs og kynningar í fleiri en einni útgáfu. Þannig var bæði hægt að prófa aldrifsútgáfu og framhjólaútgáfu, og velja um tvinn- eða tengiltvinn. Ég og ferðafélagi minn töldum nóg að prófa tengiltvinn-aldrifsbílinn enda er það hann sem Íslendingar kjósa öðrum fremur.

Í Mijas var landslagið kjörið til reynsluaksturs. Við tóku skemmtilegir hol- og hæðóttir sveitavegir sem reyndu oft bara nokkuð vel á bifreiðina. Inn á milli var skotist inn á malbikaða vegi utan í fjallinu eða úti á hraðbraut. RAV4 sómdi sér vel í öllum þessum aðstæðum, hvort sem var á hægu tölti eða á harðaspani.

Hótelið, La Zambra Mijas, sem gist var á státaði af tígullegum átján holu golfvelli sem blasti við manni af hótelbarnum.

La Zambra var þekkt hér fyrr á árum, áður en það varð gjaldþrota og lagðist í eyði. Fjárfestar reistu það úr rústum fyrir nokkrum árum. Eitt af því sem hótelið státar af frá fyrri tíð eru til dæmis tengsl við bresku rokkhljómsveitina Rolling Stones sem vandi komur sínar á næturklúbb gististaðarins og hanga myndir á veggjum sem styðja þá frásögn.

Minnkar titring

Áður en ekið var af stað fengum við stutta kynningu úti á gangi frá einum Japananna sem mættir voru á staðinn frá höfuðstöðvunum. Stöðugt er leitað leiða til að bæta aksturseiginleika bílsins og upplifun ökumanns og farþega. Í þessu tilviki sagði maðurinn okkur t.d. frá því hvernig stykki hefði verið bætt við undir bílinn að framan til að minnka titring.

Ég var fljótt kominn í torfærur á leið minni um fjallahéruð Mijas sem okkur báðum, mér og bílnum, líkaði vel. Þarna kom til dæmis sérstök brekkustýring bílsins að góðum notum. Það var ekki laust við að maður kæmist í góðan jeppafíling.

Bíllinn sómdi sér vel í þessum umhverfi baðaður sólarljósi. Hann er orðinn allur straumlínulagaðri og manni finnst eins og hann sé viljugri fyrir vikið að takast á við hvert það verkefni sem fyrir hann er lagt.

Þessi nýja tengiltvinnútgáfa dregur 130 kílómetra á rafmagni við bestu aðstæður en alltaf a.m.k. eitt hundrað kílómetra.

Miðsvæðið hefur fengið andlitslyftingu. Einfalt er að skipta um gír.
Miðsvæðið hefur fengið andlitslyftingu. Einfalt er að skipta um gír.

Mest seldi jepplingurinn

Frá þessu og öðru sögðu þau okkur þau Tatsuya Kumegawa aðstoðaryfirverkfræðingur, markaðsstjórinn Mikio Hayashi og þróunarstjóri Toyota Gazoo Razing, Teruyuki Minami. Gazoo Racing er kappakstursarmur Toyota. Hægt er að fá bílinn í gæjalegri Gazoo Racing-múnderingu sem svíkur engan.

Natalia Bnatova verkefnastjóri í almannatengslum hjá Evrópudeild Toyota fór yfir helstu tölur í sinni kynningu eftir að við vorum snúnir heim af vegunum eftir ánægjulegan akstur.

Bíllinn er eins og fyrr sagði bæði mest seldi jepplingurinn í Evrópu og í heiminum öllum. 2,5 milljónir tækja hafa selst í Evrópu á þeim þrjátíu árum sem bíllinn hefur verið á markaðnum og fimmtán milljónir bíla í heiminum öllum. Bíllinn er jafnframt söluhæsti bíll í heimi árið 2025 með um milljón seld eintök. Þær tölur segja allt um gæði bílsins og hve vel hann höfðar til almennings.

Í erindi sínu á hótelinu sagði Kumegawa frá sýn Toyota en grunngildi Toyota RAV4 eru: Fara allt, gera hvað sem er (e. Core Values: Go Anywhere, Do Anything).

Verkfræðingurinn sagði að bifreiðin ætti að höfða til fólks sem lifði nútímalegu lífi. Það að geta farið hvert sem væri á ökutækinu gæfi fólki sjálfstraust. Að geta gert hvað sem væri þýddi að bíllinn lagaði sig að öllum aðstæðum.

4 sinnum hraðvirkari

Japanarnir fóru yfir margvíslega nýja virkni og snjalla tækni í bílnum. Þar á meðal uppfærða upplýsingaskjáinn í miðjunni sem nú er 12,9 tommur, fjórum sinnum hraðvirkari og býr yfir átta sinnum meira minni.

Drifkerfið hefur allt fengið yfirhalningu í þessari nýju útgáfu, allt frá batteríi til vélar og hleðslutíminn heldur áfram að minnka í takt við nýjustu tækni. Nú er hægt að hlaða tengiltvinnbílinn á 30 mínútum frá 10% í 80%.

Eitt af því sem mér finnst jákvætt í bílaþróun er hvað gírskiptingin verður sífellt einfaldari. Allt frá því að vera skipun í skjá, lítil sveif í stýri eða handhægar sveifar milli sæta. Það er einmitt raunin með RAV4. Þú ýtir brík fram og til baka til að skipta um gír.

Hægt er að fá RAV4 með glerþaki.
Hægt er að fá RAV4 með glerþaki.

Geymsla er góð milli sæta og auðvelt að henda þar niður heilu vatnsflöskunum þó að þær eigi sitt hefðbundna pláss milli sæta og í hurðum.

Stýrið, sem nú hefur hita allan hringinn, hefur verið lækkað um 4 sentimetra sem gefur betra útsýni fram á veginn og á mælaborðið.

Ég veit ekki hversu mikið almenningur notar mismunandi akstursstillingar en fyrir þá sem hafa gaman af slíku er í boði snjó- og utanvegastilling m.a.

Hægt er að hlaða tvo síma þráðlaust á hentugum stað, en USB-tengi eru einnig í boði fyrir þá sem kjósa gömlu góðu snúruhleðsluna.

Staðan á markaði

Gervigreindin ryður sér sífellt meira til rúms. Hér geturðu til dæmis ávarpað hana og spurt um nýjustu stöðu á hlutabréfamarkaði, hvernig veðurspáin er og fleira. Þessi einkaþjónn er orðinn mun viðbragðsbetri og snallari en í eldri útgáfum, þó að þetta sé enn ekki eins og að tala við lifandi manneskju.

Dráttargetan er tvö tonnn sem ætti að duga í flest hjól- og fellihýsi á Íslandi.

RAV4 er bíll sem bæði lúkkar vel og skilar sínu enda liggur bæði mikið hugvit og áratuga reynsla að baki sem skilað hefur sér í miklum vinsældum í gegnum tíðina.

  • Orkugjafi: Rafmagn og bensín
  • Drægni: 133 km á rafmagni
  • Hestöfl: 309
  • Rafhlaða: 22,68 kWh lithium‑ion
  • Drif: FWD og AWD í boði
  • Hröðun: 0-100 km/klst. AWD 5,8
  • Hámarkshraði: 180 km/klst.
  • Breidd: 1.855 mm
  • Lengd: 1.680 mm
  • Verð frá: 10.190.000 kr. (tvinnbíll)


Upprunaleg slóð:
https://www.mbl.is/bill/frettir/2026/05/30/i_godum_jeppafiling_i_mijas/

📰 Aðrar fréttir

Banda­ríkin virði full­valda á­kvörðun þjóðarinnar - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 0
Banda­ríkin virði full­valda á­kvörðun þjóðarinnar - Vísir
Þetta kemur fram í yfirlýsingu Thomas Pigott talsmanns fyrir hönd bandaríska utanríkisráðuneytisins. „Við treystum því að Ísland verði áfram öflugur o...
Kveiktu bál á bíla­stæði - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 0
Kveiktu bál á bíla­stæði - Vísir
Um var að ræða pallettur sem staflað hafði verið hvor ofan á aðra og kveikt í að sögn sjónarvottar. Eldurinn er ekki ýkja stór en hópur svartklæddra u...
Patel to be replaced by Tugendhat as shadow foreign secretary
📅 30.08.2026 👁️ 0
Patel to be replaced by Tugendhat as shadow foreign secretary
Kemi Badenoch is expected to carry out a wider reshuffle of her front bench team following high-profile departures.
Yfir tuttugu saknað eftir skyndiflóð
📅 30.08.2026 👁️ 0
Yfir tuttugu saknað eftir skyndiflóð
Talið er að yfir tuttugu sé saknað eftir að skyndiflóð féll í Miklagljúfursþjóðgarðinum í dag. Skyndiflóðið fór af stað um klukkan hálf tvö að staðart...
UK raises detention of British activist with Israeli authorities
📅 30.08.2026 👁️ 1
UK raises detention of British activist with Israeli authorities
Finn Joughin, a 22-year-old student activist, was arrested in the Palestinian village of Umm Al-Kheir.
Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 1
Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr - Vísir
Formenn stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi mættust í Silfrinu á Rúv nú þegar niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður ...
Loft­á­rásir á Hormússundi hafnar á ný - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 1
Loft­á­rásir á Hormússundi hafnar á ný - Vísir
Haft er eftir Tim Hawkins úr herstjórn Bandaríkjanna í Miðausturlöndum að íranski byltingarvörðurinn hefði haft í hyggju að skjóta eldflaugum með tund...
Rýmdi grunn­skólann augna­blikum áður en skyndiflóð skall á - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 1
Rýmdi grunn­skólann augna­blikum áður en skyndiflóð skall á - Vísir
Rajendra Dawadi, skólastjóri Tribhuvan Trishuli-skólans í Nuwakot, skipaði nemendum að fara á hærra svæði örfáum mínútum áður en mannskætt skyndiflóð ...
Íslendingar hafi lesið sér til og hafnað framtíð í ESB
📅 30.08.2026 👁️ 2
Íslendingar hafi lesið sér til og hafnað framtíð í ESB
Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnenda Áfram Ísland, segir það ánægjulegt að nei-ið hafi haft betur í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi ...
US strikes launchers on Iran's Larak Island in first known attack in weeks
📅 30.08.2026 👁️ 2
US strikes launchers on Iran's Larak Island in first known attack in weeks
Iran says the attack killed some civilians and is the first known US strike on Iran since late July.
Skoraði á Sig­mund Davíð að flytja bókun 35 - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 2
Skoraði á Sig­mund Davíð að flytja bókun 35 - Vísir
Formenn flokkanna á Alþingi ræddu niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðsluna í gær í sérstökum þætti Silfursins á RÚV. Þar var eins og gefur að skilja snert ...
Forseti ASÍ: Hverjir kosta kosningabaráttuna verður að vera uppi á borðum
📅 30.08.2026 👁️ 2
Forseti ASÍ: Hverjir kosta kosningabaráttuna verður að vera uppi á borðum
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir mikilvægt að gera upp kosningabaráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Jón Ól...
Grinda­vík Ultra strandaði við varnargarðana - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 2
Grinda­vík Ultra strandaði við varnargarðana - Vísir
Steinar Atli Skarphéðinsson, skipuleggjandi Grindavík Ultra, segir hlaupið hafa verið unnið fyrir Grindavíkurbæ en hugmyndin hafi verið að gera það að...
Þúsunda enn saknað í Nepal og Tíbet
📅 30.08.2026 👁️ 2
Þúsunda enn saknað í Nepal og Tíbet
Að minnsta kosti 797 eru látnir eftir hamfaraflóð á landamærum Nepals og Tíbet í liðinni viku. Yfir þriggja þúsunda er saknað, þar á meðal eru hundruð...
Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýska­landi - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýska­landi - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun staðarmiðilsins DPA um málið en þar er einnig greint frá því að lögreglumenn hafi handtekið 27 ára þýsk...
Gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna í Silfrinu
📅 30.08.2026 👁️ 3
Gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna í Silfrinu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gleðst yfir því að stjórnmál á Íslandi verði ekki leiðinleg næstu árin með því að vera undirlögð ...
Sauð upp úr milli formannanna í Silfrinu
📅 30.08.2026 👁️ 2
Sauð upp úr milli formannanna í Silfrinu
Við segjum þessari fréttavakt af umræðum formanna stjórnmálaflokkanna, um niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB, loki...
Nigel Farage og Marine Le Pen fagna íslenska „nei-inu“ – niðurstaðan orðin táknmynd fyrir evrópska ESB-andstæðinga
📅 30.08.2026 👁️ 3
Nigel Farage og Marine Le Pen fagna íslenska „nei-inu“ – niðurstaðan orðin táknmynd fyrir evrópska ESB-andstæðinga
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hefur vakið töluverða athygli erlendis og leiðandi ESB-andstæðinga...
Segir ljóst hverjir séu sigurvegarar þjóðaratkvæðagreiðslunnar og að nýtt foringjaefni sé fætt
📅 30.08.2026 👁️ 3
Segir ljóst hverjir séu sigurvegarar þjóðaratkvæðagreiðslunnar og að nýtt foringjaefni sé fætt
Egill Helgason sjónvarpsmaður hefur varpað fram sinni greiningu á úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins. ...
Sveitar­stjórn krefur síma­fyrir­tækin um skýringar eftir al­var­legt vinnu­slys - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
Sveitar­stjórn krefur síma­fyrir­tækin um skýringar eftir al­var­legt vinnu­slys - Vísir
Alvarlegt vinnuslys varð á Brekkugerði í Fljótsdal 4. ágúst síðastliðinn þar sem maður fótbrotnaði þegar hestur féll á hann. Sá sem reyndi fyrst að hr...
Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glæ­nýju hlut­verki - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 1
Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glæ­nýju hlut­verki - Vísir
Grammy-verðlaunahafinn, tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Finneas O´Connel er einna helst þekktur sem bróðir stórstjörnunnar Billie Eilish en þau h...
Prisoners freed early are returning to jail at rapid rate, governors tell BBC
📅 30.08.2026 👁️ 3
Prisoners freed early are returning to jail at rapid rate, governors tell BBC
PM Andy Burnham on Sunday announced changes to the next early release scheme - scheduled to start in October - which mean PC Harper's killers will sta...
Niðurstaðan vonbrigði fyrir Evrópusambandið
📅 30.08.2026 👁️ 3
Niðurstaðan vonbrigði fyrir Evrópusambandið
„Niðurstaðan er vonbrigði fyrir Evrópusambandið, á sama tíma og það vill vera góður valkostur gagnvart keppinautum sínum í alþjóðakerfinu,“ segir Heat...
Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 2
Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn - Vísir
Össur segist hafa skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn. „Reyndar þegar þú skoðar bardagann alveg frá upphafi, frá því í vor, þá kom þa...
Ákvörðun ekki tekin á fundi utanríkismálanefndar
📅 30.08.2026 👁️ 3
Ákvörðun ekki tekin á fundi utanríkismálanefndar
Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Pawel Barto...
Mesta kjör­sókn í sögu lýð­veldisins - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 2
Mesta kjör­sókn í sögu lýð­veldisins - Vísir
Samkvæmt tilkynningu frá Landskjörstjórn hafa talningarskýrslur borist frá öllum yfirkjörstjórnum kjördæma. Fjöldi kjósenda á kjörskrá var 272.591 og ...
Seven arrested after death of newborn baby girl in Sheffield
📅 30.08.2026 👁️ 3
Seven arrested after death of newborn baby girl in Sheffield
The baby was pronounced dead at a property in the Wincobank area of Sheffield.
Vilja krefja forsvarsmenn símafyrirtækja um skýringar
📅 30.08.2026 👁️ 3
Vilja krefja forsvarsmenn símafyrirtækja um skýringar
Alvarlegt vinnuslys varð á sveitabænum Brekkugerði 4. ágúst síðastliðin og tókst ekki að ná í Neyðarlínuna þegar kalla átti eftir hjálp. Sveitarstjórn...
Björgvin G. Sigurðsson skrifar: Framtíðinni skotið á frest
📅 30.08.2026 👁️ 2
Björgvin G. Sigurðsson skrifar: Framtíðinni skotið á frest
Beint lýðræði er lítt brúkað á Íslandi. Því var þjóðaratkvæðagreiðslan um framhald viðræðna um aðild að ESB söguleg. Stærsta hagsmunamál samtímans set...
Haraldur Noregs­konungur jarð­sunginn 9. septem­ber - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
Haraldur Noregs­konungur jarð­sunginn 9. septem­ber - Vísir
Olav Fykse Tveit, forseti biskuparáðs norsku þjóðkirkjunnar, Sunniva Gylver Óslóarbiskup og Marcus André Berg dómkantor stýra athöfninni. Kista konung...
Piparúða beitt við hand­töku í Hafnar­firði - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
Piparúða beitt við hand­töku í Hafnar­firði - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar frá því klukkan sjö í morgun en á tímabilinu barst tilkynning um að handalögmál hafi brotist ...
Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september
📅 30.08.2026 👁️ 3
Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september
Haraldur Noregskonungur verður jarðaður 9. september klukkan 13 að norskum tíma, 11 að íslenskum tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku hirði...
„Stór­kost­legur ó­sigur“ bæði Sam­fylkingar og Við­reisnar - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
„Stór­kost­legur ó­sigur“ bæði Sam­fylkingar og Við­reisnar - Vísir
Mikið hefur borið á því í umfjöllun erlendra miðla síðustu vikur að ákvörðunin um að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu sé beintengd hótunum Bandaríkjafo...
Áhugalítill um ESB en vildi að Viðreisn hefði fengið menntamálaráðuneytið
📅 30.08.2026 👁️ 3
Áhugalítill um ESB en vildi að Viðreisn hefði fengið menntamálaráðuneytið
Líklega er Jón Gnarr sá þingmaður Viðreisnar sem einna minnstan áhuga hefur haft fyrir Evrópusambandinu og því að Ísland héldi afram aðildarviðræðum v...
„Fram­kvæmda­stjórnin virðir vilja ís­lensku þjóðarinnar“ - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
„Fram­kvæmda­stjórnin virðir vilja ís­lensku þjóðarinnar“ - Vísir
„Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar. Ísland er áfram náinn samstarfsaðili Evrópusambandsins,“ segir í stuttri yfirlýsingu þeirra en ...
Woman injured in fatal police pursuit crash near Stratford-upon-Avon dies
📅 30.08.2026 👁️ 3
Woman injured in fatal police pursuit crash near Stratford-upon-Avon dies
She had been driving a car which was involved in a collision with an Audi being chased by police.
Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér
📅 30.08.2026 👁️ 2
Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér
Eldur Smári Kristinsson skrifar: Í gær, laugardaginn 29. ágúst 2026, greiddi íslenska þjóðin atkvæði. Spurningin var skýr: Á Ísland að hefja á ný aðil...
Lög­reglan í Vest­manna­eyjum óskar eftir vitnum - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
Lög­reglan í Vest­manna­eyjum óskar eftir vitnum - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í færslu sem birt var á Facebook-síðu Lögreglunnar í Vestmannaeyjum en þar segir einnig að fyrra skiptið hafi verið...
Head teacher evacuated 900 children minutes before Nepal floods hit
📅 30.08.2026 👁️ 2
Head teacher evacuated 900 children minutes before Nepal floods hit
Rajendra Dawadi leapt into action after receiving warnings over waters heading towards his school.
Björn Jón skrifar: Einstakt þjóðfélag
📅 30.08.2026 👁️ 3
Björn Jón skrifar: Einstakt þjóðfélag
Mynd Í Ljósvetninga sögu segir af því að Guðmundur ríki hafi oft riðið me
Afar ósátt við hörð orð Gauta og tekur þau til sín -„Hóta fólki með enn trylltari viðbrögðum“
📅 30.08.2026 👁️ 3
Afar ósátt við hörð orð Gauta og tekur þau til sín -„Hóta fólki með enn trylltari viðbrögðum“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur mikið komið við sögum í umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í gær. Enn heldur umræðan áfr...
Jón Gnarr segir heiftina hafa farið út fyrir allan þjófabálk: Við erum ekki svona fólk
📅 30.08.2026 👁️ 3
Jón Gnarr segir heiftina hafa farið út fyrir allan þjófabálk: Við erum ekki svona fólk
Jón Gnarr segir heiftina hafa farið út fyrir allan þjófabálk: Við erum ekki svona fólk Þing­mað­ur Við­reisn­ar seg­ir kosn­inga­bar­átt­una hafa ver­...
Kjósendur stilltu sér upp eftir flokkslínum
📅 30.08.2026 👁️ 3
Kjósendur stilltu sér upp eftir flokkslínum
Stjórnmálafræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur eru sammála um að þjóðin hafi fylkt sér að baki sínum stjórnmálaleiðtogum þegar afstaða var tekin ti...
Ísland áfram náið samstarfsríki Evrópusambandsins
📅 30.08.2026 👁️ 3
Ísland áfram náið samstarfsríki Evrópusambandsins
Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, hefur verið í skeytasambandi við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra eftir að niðurstaða þj...
Á­rásar­maðurinn enn ó­fundinn - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
Á­rásar­maðurinn enn ó­fundinn - Vísir
Á blaðamannafundi sem fram fór á svæðinu í dag sagði lögregla hvorki vita hver hóf skothríðina né hvers vegna. Þá telur lögreglan að árásarmaðurinn eð...
Nei-hliðin vann á ást­ríðunni - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
Nei-hliðin vann á ást­ríðunni - Vísir
„Nei,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, afdráttarlaus aðspurður um hvort niðurstaða atkvæðagreiðslunnar marki endalok ...
Nasa launches Nancy Grace Roman telescope to explore Universe's mysteries
📅 30.08.2026 👁️ 3
Nasa launches Nancy Grace Roman telescope to explore Universe's mysteries
The US space agency's telescope is starting a multi-year mission to create a new map of the universe and learn more about dark energy and dark matter.
'A giant leap forward': Nasa launches powerful new space telescope
📅 30.08.2026 👁️ 2
'A giant leap forward': Nasa launches powerful new space telescope
The US space agency's telescope is starting a multi-year mission to create a new map of the universe and learn more about dark energy and dark matter.
„Lands­byggðin okkar stendur sterk” - Vísir
📅 30.08.2026 👁️ 3
„Lands­byggðin okkar stendur sterk” - Vísir
Alls greiddu 53 prósent kjósenda atkvæði gegn því að halda viðræðum áfram og 47 prósent með ef litið er til heildarinnar en ef kjördæmin eru skoðuð sé...
Niðurstaðan felur ekki í sér stuðning við óbreytt ástand
📅 30.08.2026 👁️ 3
Niðurstaðan felur ekki í sér stuðning við óbreytt ástand
Samtök iðnaðarins kalla eftir því að efnahagsmál verði sett í forgang. Framkvæmdastjóri samtakanna segir niðurstöðuna ekki fela í sér stuðning við óbr...