Belgísk kona sem framseld var til landsins í ágúst vegna rannsóknar lögreglu á stórfelldu fíkniefnasmygli hefur verið úrskurðuð í farbann. Maður sem er einnig frá Belgíu hefur verið í gæsluvarðhaldi hérlendis síðan 13. júní vegna málsins. Þetta kemur fram í farbannsúrskurði Landsréttar.
Fólkið er grunað um að hafa smyglað um 70 kílóum af fíkniefnum til landsins í júní. Efnin voru falin í húsbíl sem kom til landsins með Norrænu.
Gróf holu á tjaldsvæði
Lögregla veitti parinu eftirför frá Seyðisfirði og að Egilsstaðaflugvelli þar sem maðurinn skutlaði konunni í flug til Reykjavíkur. Maðurinn var svo handtekinn á tjaldsvæði á Norðurlandi 12. júní.
Þegar lögregla handtók manninn hafði hann hafist handa við að grafa holu á tjaldsvæðinu. Þá var meðal annars til rannsóknar hvort maðurinn hafi ætlað sér að fela fíkniefnin í holunni.
Í bílnum fundust 56 kíló af amfetamíni, átta kíló af kókaíni, þrjú kíló af ketamíni, eitt kíló af kristölluðu metamfetamíni og eitt kíló af svokölluðu bleiku kókaíni, sem er blanda af ketamíni og MDMA.
Gefin var út evrópsk handtökuskipun á hendur konunni og var hún framseld til Íslands frá Belgíu þann 17. ágúst og sætir hún nú farbanni til 27. nóvember. Rannsókn er lokið og er málið nú á borði héraðssaksóknara.