Kjörstaðir fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í dag verða yfirleitt opnaðir klukkan níu og þeim lokað klukkan tíu í kvöld. Það er þó ekki alveg algilt. Upplýsingar um opnunartíma kjörstaða má finna á vefsíðu viðkomandi sveitarfélags og almenningur getur fundið sinn kjörstað á vef Þjóðskrár.
Kjósandi þarf að vera skráður með lögheimili í sveitarfélaginu fyrir klukkan 12 á hádegi, 38 dögum fyrir kjördag, samkvæmt Þjóðskrá. Nærri 30 þúsund höfðu í gær greitt atkvæði utan kjörfundar. Það er rúmlega 36% aukning frá sama tíma í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2022.
Á kjörstað þarf að finna sína kjördeild, sem raðað er í stafrófsröð. Þar mæta kjósendur starfsmönnum og þurfa að gera grein fyrir sér með framvísun gildra persónuskilríkja með mynd. Í kjörklefanum bíður kjörseðill og skriffæri. Þegar merkt hefur verið við tiltekinn lista skal skila kjörseðlinum í kjörkassa.
Hverjum og einum er heimilt að fá aðstoð við að greiða atkvæði án þess að þurfa að gefa sérstakar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið með eigin aðstoðarmann eða fengið liðsinni frá starfsfólki.
Kosið verður í 62 sveitarfélögum en einni færri sveitarstjórn verður kjörin þar sem valin verður sameiginleg stjórn Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.
Sameining þeirra tekur gildi að loknum kosningum. Sveitarfélögum hefur fækkað um þrjú frá síðustu kosningum. Í sjö sveitarfélögum er óbundin kosning, þar sem allir kjörgengir íbúar eru í framboði nema þeir sem undan því biðjast, og sjálfkjörið er í fjórum.
Listakosning er viðhöfð í fimmtíu sveitarfélögum þar sem 3.156 frambjóðendur gefa kost á sér á 178 listum. Eðlilegt er að mörgum þyki erfitt að gefa upp hug sinn þegar valkostirnir eru margir, og því gæti verið snjallt að taka kosingapróf RÚV.
Sérstakt tímabundið ákvæði fyrir íbúa Grindavíkur
Þau sem lögheimili áttu í Grindavík fyrir 10. nóvember 2023 gátu samkvæmt tímabundnu ákvæði kosningalaga valið um að vera á kjörskrá þar eða í því sveitarfélagi þar sem þau eiga nú lögheimili.
Landskjörstjórn verður með vakt frá klukkan 8:30 til 23:00 í dag, kjördag, þar sem fá má almennar upplýsingar um kosningarnar í síma 540 7500 eða með tölvupósti á postur@landskjorstjorn.is.
Á morgun, sunnudaginn 17. maí, verður símavakt hjá landskjörstjórn milli klukkan 10:00 og 12:00. Sendinefnd, fimmtán manns, á vegum Evrópuráðsins kom til landsins í vikunni til að fylgjast með sveitarstjórnarkosningunum.
Nefndinni verður skipt í sjö hópa á laugardag sem fara vítt og breitt um landið og fylgjast með því sem gerist á kjörstöðum. Hún mun loks skila skýrslu um framkvæmd kosninganna.