Hvaðan kemur fylgið?
Framsóknarflokknum blæðir til hægri og berst nú fyrir því að halda manni í borgarstjórn á meðan Viðreisn sækir í allar áttir. Stór hluti fylgis Vinstrisins fluttist með Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Sósíalistum, sem sækja sjálfir í kjósendahóp Pírata.
Talsverður hreyfanleiki er á kjósendum á milli borgarstjórnarkosninga. Þetta má lesa út úr Gallup-könnun á fylgi þeirra í apríl. Kjósendur Framsóknar hafa yfirgefið flokkinn fyrir Sjálfstæðisflokk og ljóst er að töluvert fylgi fylgir Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Sósíalistaflokknum yfir til Vinstrisins.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Sækir fylgi og heldur kjósendum
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur borgarinnar með 29 prósenta fylgi samkvæmt könnuninni. Það er jákvæð þróun um 4,5 prósent en flokkurinn fékk 24,5 prósent í kosningunum 2022. Könnunin sýnir að flokkurinn sækir þetta aukna fylgi úr mörgum áttum.
Af þeim sem kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast eru 73 prósent sem ætla að gera það aftur. Til viðbótar …