Þrír hermenn jemenska stjórnarhersins féllu í drónaárás uppreisnarhers Húta í Jemen í dag. Fjórir til viðbótar særðust. Í gær féllu á sjötta tug stjórnarhermanna eftir dróna- og flugskeytaárásir Húta á hernaðarleg skotmörk í miðju og austanverðu landinu.
Jemen hefur á síðustu dögum og vikum dregist í sívaxandi mæli inn í stríð Bandaríkjanna og Ísrael við Íran. Hútar hafa hert á árásum sínum, bæði gegn stjórnarhernum í Jemen og Sádi-Aröbum.
Sádar eru lykilbandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og hafa frá árinu 2015 farið fyrir fjölþjóðaher sem styður stjórnarherinn í Jemen.
Í gær særðust ellefu almennir borgarar í Sádi-Arabíu, þar á meðal fjögurra ára gamalt barn, í árásum Húta á suðurhluta landsins.
Hundruð þúsunda hafa farist í borgarastyrjöldinni í Jemen sem hófst 2014. Hútar og alþjóðlega viðurkennd stjórn landsins sömdu um vopnahlé 2022. Þrátt fyrir að það hafi fallið skömmu síðar úr gildi hefur vopnahléð haldið að mestu þar til nýlega. Í júlí lýstu Hútar yfir hafnbanni á sádiarabískar hafnir. Síðan þá hafa þeir ráðist á olíuflutningaskip á Rauðahafi og hert árásir sínar á stjórnarherinn.