Hjónin birtu mynd af sér frá athöfninni á Instagram.
Helgi var í flottum brúnum jakkafötum en Pétur í hefðbundnari svörtum jakkafötum. Athöfnin var lítil og krúttleg og veislan haldin í heimahúsi. Ljósmyndarinn Irja Gröndal tók glæsilegar myndir af hjónunum í Kópavogskirkju og á Borgarholtinu með útsýni yfir Fossvoginn.
Pétur og Helgi hafa verið saman síðan 2022 eftir að hafa verið vinir í fimmtán ár fyrir það. Þann 3. mars 2023 skellti Pétur sér á skeljarnar og bað Helga að giftast sér og hafa þeir verið trúlofaðir síðan.
Parið bjó lengi vel í Reykjavík, fyrst á Laugaveginum og síðan Sólvallagötu, en fluttu síðasta haust í suðurhlíðar Kópavogs þar sem Pétur var einmitt framboði fyrir Viðreisn í nýafstöðnum sveitarstjórnarskosningum.