Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að aflýsa lokahófi sínu sem átti að fara fram í Austurbæ næstkomandi laugardag.
Ástæðan er dræm miðasala síðustu daga en lokahófið var auglýst fyrr á árinu sem „endurkoma hins vinsæla viðburðar eftir nokkurra ára hlé,“ kemur fram í tilkynningu HSÍ.
Sambandið hafði vonast til að handboltahreyfingin myndi fjölmenna á viðburðinn en þeir sem þegar hafa keypt miða munu fá þá endurgreidda.
„Lokahófið átti að marka ákveðin tímamót þar sem viðburðurinn hefur ekki verið haldinn síðan fyrir heimsfaraldur Covid-19. Haldið verður lokahóf með sama sniði og undanfarin ár í næstu viku þar sem verðlaunahafar verða boðaðir,“ stendur enn fremur í tilkynningu HSÍ.