Við Íslendingar munum alltaf lenda í milli í stríðsbrölti stórvelda og megum ekki halda að við getum bara setið hjá og verið í liði með öllum og engum. Yfirgangur Trumps gagnvart Grænlandi ætti að vera okkur til áminningar og við þurfum að endurskoða stöðu okkar. Að horfa í kostnaðinn við viðræður um aðild að ESB er hlægilegt. Hrund Rudolfsdóttir, athafnakona, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar
Hrund Rudolfsdóttir: Hlægilegt að horfa í kostnað við aðildarviðræður – hagsmunirnir miklu stærri en svo