„Hvítur fiskur er ótrúlegt hráefni. Þar má nefna þorsk, ýsu, löngu, steinbít, rauðsprettu og smálúðu. Það er svo mikið magn af prótíni og nánast ekkert annað í fisknum og svo mikið gott hægt að gera úr honum,“ segir Hrefna Rósa Sætran.
„Maður ætti að borða hvítan fisk eins oft og kostur er. Með þessum fiskrétti bakaði ég steinseljurót og blaðlauk, einfaldlega vegna þess að ég átti það til, en auðvitað er hægt að nota það grænmeti sem hver og einn kýs. Þar mætti til dæmis nefna gulrætur, sætar kartöflur, brokkolí eða venjulegar kartöflur. Hér er uppskriftin að fiskréttinum, þorski í möndluhjúp, nákvæmlega eins og ég geri hana sjálf,“ segir hún.
Hrefna Sætran: Þorskur með möndluhjúp
Þorskur með möndluhjúp
Fyrir 4
Bökuð steinseljurót og blaðlaukur
- 1 stk. steinseljurót
- 1 stk. blaðlaukur
- Olía
- Salt og pipar
Aðferð
- Hitaðu ofninn upp í 200 °C.
- Skrældu steinseljurótina og skerðu hana í kubba.
- Skerðu svo blaðlaukinn niður líka.
- Settu þetta í skál, helltu olíu yfir og kryddaðu með salti og pipar.
- Settu smjörpappír á ofnskúffu og dreifðu grænmetinu yfir hana.
- Eldaðu grænmetið í 20 mínútur og undirbúðu fiskinn á meðan.
Þorskurinn
- 600 g þorskhnakkar
- 3 msk. ólífuolía
- 2 msk. sítrónusafi
- 2 hvítlauksrif, fínt söxuð
- 1 lúka fersk steinselja, fínt söxuð
- 60 g hakkaðar möndlur
- 1 msk. paprikuduft
- Salt og pipar
Aðferð
- Skerðu fiskinn niður í bita.
- Þerraðu hann vel með eldhúspappír.
- Settu allt hitt hráefnið saman í skál og blandaðu saman.
- Taktu grænmetið út úr ofninum og færðu það á annan helminginn af ofnskúffunni. Raðaðu svo fiskinum á hinn helminginn og kryddaðu hann með salti og pipar.
- Settu svo möndluhjúpinn ofan á fiskbitana með höndunum og mótaðu hann til.
- Bakaðu áfram í 10-12 mínútur (fer eftir hversu þykkur fiskurinn er).
- Ef þú ert ekki viss um það hvort fiskurinn sé tilbúinn þá getur þú bara slökkt á ofninum og leyft honum að dóla aðeins áfram inni.
Vinaigrette
„Ég gerði svo vinaigrette til að hafa með. Þessi dressing passar svakalega vel fisknum og grænmetinu og svo var ég líka með salat með.“
- 2 msk. balsamedik
- 2 msk. hunang
- 1 msk. Dijon-sinnep
- 100-150 ml ólífuolía
Aðferð
- Pískaðu ediki, hunangi og sinnepi saman í skál.
- Helltu svo olíunni saman við í mjórri bunu og pískaðu áfram saman.
Verði ykkur að góðu!
