Leikstjórinn Adam Marcus hefur vakið athygli fyrir býsna harðorð ummæli um bandaríska leikarann Val Kilmer, sem lést á síðasta ári, en Marcus segir hann hafa verið verstu manneskju sem hann hafi nokkurn tíma kynnst.
Marcus leikstýrði Kilmer í spennumyndinni Conspiracy árið 2008. Í færslu á samfélagsmiðlinum Threads rifjaði hann upp samstarfið og lét afar neikvæð orð falla um leikarann, sem meðal annars var þekktur fyrir hlutverk sín í Top Gun og fleiri myndum.
„Ef þessi maður hefði gert einn tíunda af því sem hann gerði á tökustaðnum mínum í dag, hefði honum verið slaufað á augabragði,“ skrifaði Marcus. Hann bætti við að Kilmer væri „versta manneskja sem hann hefði nokkurn tímann kynnst“.
Marcus svaraði jafnframt fyrirfram gagnrýni á að tala illa um látinn mann og sagði að hann sæi enga ástæðu til að þegja um reynslu sína. Færslurnar hafa síðan verið fjarlægðar af Threads.
Val Kilmer lést 1. apríl 2025 úr lungnabólgu en hann hafði lengi glímt við krabbamein í hálsi. Leikarinn var 66 ára þegar hann.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem samstarfsmenn Kilmers lýsa erfiðum samskiptum við hann. Leikstjórinn John Frankenheimer sagði árið 1996, eftir gerð myndarinnar The Island of Dr. Moreau, að hann vildi aldrei aftur vinna með Kilmer.
Einnig hefur verið greint frá því að Marlon Brando hafi átt í átökum við leikarann við gerð sömu myndar.
Þrátt fyrir umdeilda hegðun á tökustöðum naut Kilmer mikillar virðingar fyrir leikferil sinn. Hann sló í gegn sem orrustuflugmaðurinn Tom „Iceman“ Kazansky í Top Gun og lék síðar í fjölda vinsælla kvikmynda, þar á meðal Batman Forever, Heat og The Doors.
Nýlega var greint frá því að Kilmer kæmi fram í kvikmyndinni As Deep as the Grave, sem væntanleg er síðar á þessu ári. Þar er útlit hans og rödd endursköpuð með gervigreind í samstarfi við fjölskyldu hans.