Donald Trump hefur hótað því að leggja tolla á Breta ef þeir leggja ekki niður netskattinn, sérstakan skatt á stafræna þjónustu. Bandarísk samfélagsmiðlafyrirtæki eru á meðal þeirra sem greiða slíkan skatt. „Ef þeir fella ekki niður skattinn þá skellum við háum tollum á Bretland,“ sagði Trump við blaðamenn í skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í gærkvöld.
Spurður að því hversu háir tollarnir yrðu sagði forsetinn að þeir myndu kosta Breta meira en þeir fá með álagningu skattsins.
Skatturinn beinist gegn „bestu fyrirtækjum í heimi“
Skatturinn, sem var kynntur til sögunnar 2020, er 2% tekjuskattur. Hann er lagður á fyrirtæki sem hafa yfir 500 milljón pund í árstekjur af stafrænum rekstri á heimsvísu, sem eru um 83 milljarðar króna, ef og aðeins ef breskir notendur skila yfir 25 milljónum punda í kassa fyrirtækjanna, sem eru rúmir fjórir milljarðar króna. Bandarísku tæknirisarnir Apple, Google og Meta eru á meðal þeirra fyrirtækja sem borga þennan skatt.
Skatturinn hefur um árabil verið þrætuepli á milli Breta og Bandaríkjamanna og Trump segir hann beinast gegn „bestu fyrirtækjum í heimi“.
Samskipti ríkjanna hafa stirðnað
Samskipti ríkjanna tveggja hafa stirðnað á síðustu vikum, ekki síst eftir að Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands útilokaði aðkomu breska hersins í stríðinu í Mið-Austurlöndum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bandaríkjaforseti hótar að beita tollum gegn ríkjum sem innheimta netskatt, líkt og fjallað er um í frétt The Guardian. Í ágúst sagðist forsetinn ætla að standa uppi í hárinu á þeim ríkjum „sem ráðast á“ bandarísk tæknifyrirtæki, eins og hann orðaði það með slíkum skatti. Þá sagði hann netskatta vera hannaða til þess að skaða eða mismuna bandarískum tæknifyrirtækjum.