Utanríkisráðuneyti Írans segir nágrannaríkin við Persaflóa bera lagalega og siðferðilega ábyrgð á því að koma í veg fyrir atlögur herja Bandaríkjanna og Ísraels.
Þau megi ekki skipuleggja þaðan eða gera árásir á Íran. Þetta eigi ekki síst við ríkin við suðurströnd flóans. Bandaríkjaher gerði í gærkvöld og nótt árásir á hernaðarlega innviði í Íran sem svarað var með eldflaugaárásum á herstöðvar í Jórdaníu og Barein.
Hernaðaryfirvöld í Kúveit segjast hafa grandað minnst fimm eldflaugum frá Íran. Bandaríkjaher kveðst í bili að minnsta kosti hættur árásum á Íran. Með þeim orðum látum við þessari fréttavakt lokið, hið minnsta um sinn.
Íransher gerði eldflaugaárásir á bandarískar herstöðvar í Jórdaníu og Barein í morgun í hefndarskyni fyrir árásir Bandaríkjahers á hernaðarleg skotmörk í Íran voru til að refsa fyrir að bandarísk herþyrla var skotin niður yfir Hormússundi.
Hermálayfirvöld í Jórdaníu segjast hafa grandað fimm eldflaugum frá Íran og að hvorki hafi orðið mann- né eignatjón. Þetta eru hörðustu átök milli Írans og Bandaríkjanna frá því vopnahlé komst á 8. apríl og hafa vakið efasemdir um að frekari viðræður séu á lokametrunum líkt og Donald Trump forseti hefur haldið fram.
Hernaðaryfirvöld í Kúveit segja í færslu á X að loftvarnarkerfi landsins hafi brugðist við „fjandsamlegum árásum úr lofti, í samræmi við viðurkenndar verklagsreglur“ eins og það er orðað. Uppruni árásanna er ekki tilgreindur sérstaklega.
Loftvarnarflautur ómuðu um Persaflóaríkið Barein í nótt eftir að íranski byltingarvörðurinn sagðist hafa gert árás á bandaríska herstöð í landinu. Innanríkisráðuneytið hvetur almenning til stillingar og að halda sig í öruggu skjóli.
Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjanna, segir árásirnar á Íran hafa verið í réttu hlutfalli við ástæður þeirra og hafi verið viðbragð við „óréttlætanlegri yfirgangssemi“ Írana.
Johnson kveðst hafa verið viðstaddur þegar Donald Trump forseti og fleiri háttsettir embættismenn ákváðu að láta til skarar skríða. Þeirra á meðal voru varaforsetinn, utanríkis- og varnarmálaráðherra. „Við hörmum að hafa þurft að grípa til þessara aðgerða, en þær voru nauðsynlegar,“ sagði Johnson við blaðamenn í þinghúsinu.
Bandaríkjaher kveðst hafa lokið öllum aðgerðum sem gerðar hafi verið í sjálfsvarnarskyni gegn Íran.
Miðstjórn hersins í Mið-Austurlöndum greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum X og sagði orrustuþotur flug- og sjóhers hafa gert „nákvæmnisárásir“ á loftvarnarkerfi Írana, stjórnstöðvar á jörðu niðri og ratsjárstöðvar við Hormússund.
Bandaríkjaher hefur að nýju gert árásir nærri Hormússundi eftir að íranskir fréttamiðlar sögðu allt orðið með kyrrum kjörum eftir þungar árásir fyrr í kvöld. Bandaríkjaforseti sagði þær atlögur gerðar í hefndarskyni fyrir að bandarísk herþyrla var skotin niður yfir sundinu í gær. Íranar segjast ekki hafa verið þar að verki.
Íranskir miðlar segja sprengingar hafa kveðið við á Qeshm-eyju og í hafnarborginni Bandar Abbas. Íranski byltingarvörðurinn segist á móti hafa gert árásir á bandaríska herstöð í Barein.
Velkomin á þessa fréttavakt. Ég heiti Markús Þórhallsson og fylgist með framvindu mála í nótt.