Hondius farið af stað til Tenerife

Hondius farið af stað til Tenerife

Hondius farið af stað til Tenerife

Við ætlum að ljúka þessari fréttavakt um hantaveirusmit um borð í skemmtiferðaskipinu Hondius. Kærar þakkir fyrir samfylgdina í dag, í lokin kemur hér smá samantekt:

  • Skipið er farið af stað frá Grænhöfðaeyjum.
  • Búist er við að það komi til Tenrife á laugardag.
  • Þrír farþegar voru fluttir frá borði í dag, búið er að staðfesta smit hjá tveimur
  • Spænsk stjórnvöld samþykktu að taka við skipinu en forseti Kanaríeyja er ekki ánægður með það.
  • Af átta tilfellum sem tengjast Hondius hafa fimm verið staðfest.
  • Samkvæmt áætlun á skipið að koma hingað til lands síðar í mánuðinum en óvíst er hvort af því verður.

Skipið Hondius er farið af stað. Það siglir nú frá Grænhöfðaeyjum til Kanaríeyja. Siglingin tekur um það bil þrjá sólarhringa og búist við því að Hondius leggist að bryggju á Tenerife á laugardag.

Staðfest hantaveirusmit tengd skemmtiferðaskipinu Hondiusi eru nú orðin fimm, þetta segir fulltrúi WHO á Grænhöfðaeyjum Ann Lindstrand.

„Af öllum tilfellum sem tengjast skipinu, þessi átta tilfelli, höfum við staðfest fimm,“ segir Lindstrand.

Hollenska flugfélagið KLM staðfestir að konu sem lést í Suður-Afríku þann 26. apríl hafi verið vísað frá borði vélar félagsins daginn áður.

Hjón frá Hollandi sem voru um borð í Hondius létust bæði. Maðurinn lést 11. apríl og eiginkona hans flaug til Jóhannesarborgar í Suður-Afríku 24. apríl. Ástand konunnar versnaði svo 25. apríl og hefur hún farið um borð í flugvél KLM sem var á leið til Amsterdam.

„Áhöfnin ákvað að leyfa farþeganum ekki að ferðast vegna heilsufars á þeim tíma,“ segir í yfirlýsingu KLM.

Monica Garcia, heilbrigðisráðherra Spánar, sagði á fundi með fréttamönnum að þegar einstaklingar með einkenni væru farnir frá borði á Grænhöfðaeyjum héldi skipið áfram til Kanaríeyja.

„Það á að koma til hafnar eftir þrjá sólarhringa í varahöfn Granadilla de Abona. Það er róleg varahöfn í um tíu mínútna fjarlægð frá flugvellinum á Tenerife,“ sagði Garcia og á þar við Tenerife Sur-flugvöllinn sem margir Íslendingar þekkja.

Associated Press greinir frá því að við rannsókn á upptökum smitsins sé aðaltilgátan sú að hollenskt par hafi smitast í fuglaskoðun í argentínsku borginni Ushuaia áður en þau fóru um borð í Hondius.

Parið er sagt hafa komið við á urðunarstað þar sem mögulegt er að þau hafi komist í snertingu við nagdýr. Rannsóknin er enn í gangi og þetta er aðeins tilgáta.

Hér að neðan má sjá kort af leið Hondiusar. Ferðin hófst í Argentínu, skipið er nú við Grænhöfðaeyjar og stefnir til Tenerife. Siglingin frá Grænhöfðaeyjum til Tenerife tekur um þrjá sólarhringa.

Upplýst hefur verið um átta staðfest eða grunuð smit:

  • Þrjú eru látin, hollensk hjón og þýskur karlmaður
  • Einn er á sjúkrahúsi í Sviss
  • Breskur karlmaður er á sjúkrahúsi í Suður-Afríku, ástand hans er sagt stöðugt
  • Þrír voru fluttir frá borði í morgun, tveir úr áhöfn og einn farþegi

Það eru samtals yfir 140 manns um borð í Hondius. Farþegar eru um 80 og frá 15 mismunandi löndum. Meirihluti starfsfólks kemur frá Filippseyjum.

Reuters ræddi við farþega um borð í morgun. Hann segir að skipstjórinn haldi þeim vel upplýstum. Fólk sé beðið um að takmarka náin samskipti við aðra farþega og fólk beri grímu til öryggis og noti handspritt.

Farþeginn sagði fólk taka ástandinu alvarlega en það væri ekki ringulreið um borð. Dagarnir væru nokkuð eðlilegir, andrúmsloftið fínt og þau biðu þess að farsæl lausn fyndist.

Hér er smá samantekt yfir helstu vendingar dagsins.

  • Þrír farþegar voru fluttir frá borði, tveir mjög veikir en sá þriðji einkennalaus
  • Hondius stefnir til Tenerife, þrátt fyrir efasemdir yfirvalda á Kanaríeyjum
  • Stjórnvöld á Spáni héldu blaðamannafund um áformin
  • Heilbrigðisráðherra Spánar sagði að spænskir ríkisborgarar verði settir í sóttkví
  • Aðrir verða sendir til síns heima
  • Innanríkisráðherra Spánar sagði þeim bera skylda til að koma fólkinu til hjálpar
  • Forseti Kanaríeyja segir nær að fólkið fái að fara í höfn á Grænhöfðaeyjum

Tedros Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar WHO, telur ekki líkindi með atburðarásinni nú og þegar heimsfaraldur kórónuveiru hófst fyrir nokkrum árum.

AFP greinir frá þessu.

Tveir af þeim þremur sem fluttir voru frá Hondius fyrir skömmu eru með alvarleg einkenni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá rekstraraðila skipsins, Oceanwide. Hanta-smit hafi ekki verið staðfest hjá þeim að svo stöddu.

Sá þriðji hafi verið náinn manneskju sem lést um borð 2. maí.

Tveir smitsjúkdómalæknar eru væntanlegir um borð í dag. Að sögn Oceanwide koma þeir frá Hollandi.

Fernando Grande-Marlaska, innanríkisráðherra Spánar, varði ákvörðun sína um að leyfa Hondius að sigla til Kanaríeyja þrátt fyrir efasemdir heimamanna. Hann sagði að um borð væru um 140 manns sem þyrftu nauðsynlega á hjálp að halda.

Grande-Marlaska sagði að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefði óskað eftir því við Spánverja að höfn á Kanaríeyjum yrði notuð.

Monica Garcia, heilbrigðisráðherra Spánar, sagði á blaðamannafundi í hádeginu að spænskir ríkisborgarar sem eru í skemmtiferðaskipinu Hondius verði settir í sóttkví eftir að þeir stíga frá borði. Heilbrigðisstarfsmenn skoða fólkið við komuna til Kanarí og síðan verður það sent herspítala í Madríd, höfuðborg Spánar.

Ferðamenn frá öðrum verða sendir til síns heima ef þeir reynast einkennalausir við heilbrigðisskoðun. Þeir verða svo að fylgja sóttvarnareglum í heimalöndum sínum.

Rekstraraðili Hondius hefur beðið um leyfi til þess að leggjast að bryggju í Santa Cruz á Tenerife á laugardaginn. Fernando Clavijo, forseti Kanaríeyja, segir ekki skynsamlegt að allir farþegar komi þangað.

„Ef það er öruggt og farþegar heilbrigðir gætu þeir alveg farið frá alþjóðaflugvellinum á Grænhöfðaeyjum,“ segir Clavijo. Hann virðist því enn ekki vilja fá skipið til Kanaríeyja.

Monica Garcia, heilbrigðisráðherra Spánar, var rétt í þessu að kynna áætlanir ríkisstjórnarinnar um komu skipsins til Kanaríeyja.

Í tilkynningu á heimasíðu Oceanwide Expeditions, sem rekur skemmtiferðaskipið Hondius, segir að áætlað sé að sigla til Kanaríeyja. Fyrirtækið segist í nánum samskiptum við yfirvöld þar varðandi nákvæman komutíma, sóttkví og skimun.

„Við getum ekki staðfest neitt varðandi áframhaldandi ferðalög farþega á þessu stigi. Það veltur á ráðleggingum lækna og niðurstöðum skimana,“ segir í tilkynningunni.

Stjórnvöld á Spáni höfðu heimilað Hondius að leggjast að bryggju á Kanaríeyjum en yfirvöld þar samþykkja það ekki.

Þrír smitaðir hafa verið fluttir frá borði og fara til Hollands á sjúkrahús. Búið er að staðfesta þjóðerni þeirra, einn er frá Bretlandi, annar frá Hollandi og sá þriðji er frá Þýskalandi.

Tedros Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, segir að WHO haldi áfram að vinna náið með rekstraraðila skipsins og stjórvöldum Grænhöfðaeyja, Bretlands, Spánar og Hollands.

„Á þessu stigi er hættan lítil á heildina litið,“ skrifar Ghebreyesusí færslu á X.

Maður sem var um borð í Hondus en var kominn heim til sín í Sviss er smitaður af hantaveiru. Samkvæmt svissneska heilbrigðisráðuneytinu hafði maðurinn samband við heimilislækni í lok apríl áður en hann fór á sjúkrahús.

Þar var hann settur í einangrun og síðar var staðfest að hann hefði smitast af hantaveiru.

Tveir læknar sem sérhæfa sig í smitsjúkdómum eru á leiðinni frá Hollandi. Þeir ætla um borð í skipið og vera þar áfram eftir áætlaða brottför frá Grænhöfðaeyjum.

Þetta segir rekstraraðili skipsins.

Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir, sagði í fréttum okkar í gær að Hondius yrði ekki hleypt að landi hér nema að uppfylltum ströngum skilyrðum. Íslensk stjórnvöld hafi valdheimildir til að stöðva komu skipsins til Íslands.

„Það er ekki á forræði sóttvarnalæknis en við höfum alveg valdheimildir til slíks. Bæði varðandi siglingar og að koma í höfn. Þannig að það á ekkert skip að þurfa að koma og leggja hér að sem að við teljum ekki vera öruggt,“ sagði Guðrún.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfestir að verið sé að flytja þrjá farþega frá borði. „Líðan þeirra er stöðug og einn er einkennalaus,“ segir Ann Lindstrand hjá WHO á Grænhöfðaeyjum við AFP.

Gert er ráð fyrir að skipið fari af stað frá Grænhöfðaeyjum eftir rýminguna. Þá á, eða átti að minnsta kosti, að stefna til Kanaríeyja. Sú sigling tæki um þrjá sólarhringa.

Stjórnvöld á Kanaríeyjum hafa hafnað því að leyfa Hondius að leggjast að bryggju.

Stjórnvöld á Kanaríeyjum hafna því að leyfa hollenska skipinu Hondius að leggjast að bryggju. Fernando Clavijio, forseti Kanaríeyja, segir þau ekki hafa nægar upplýsingar um ástandið um borð.

Hollenska skipið Hondius fær ekki að leggjast að bryggju á Kanaríeyjum líkt og spænsk stjórnvöld höfðu heimilað. Stjórnvöld á Kanaríeyjum hafna því og forsetinn segir þau ekki hafa nægar upplýsingar.

Í gær staðfesti spænska heilbrigðisráðuneytið að Spánn ætlaði að taka á móti skemmtiferðaskipinu Hondius á Kanaríeyjum í samræmi við alþjóðalög og af mannúðarástæðum. Það virðist ekki ætla að ganga eftir því stjórnvöld á Kanaríeyjum hafna þessu. „Ég get ekki leyft bátnum að koma til Kanaríeyja,“ segir Fernando Clavijo, forseti Kanaríeyja, í viðtali við útvarpsstöðina Onda Cero.

„Við höfum ekki fengið nægar upplýsingar,“ bætir Clavijo við.

Rannsóknir á hanta-veirunni sem herjar á farþega og áhöfn skemmtiferðaskipsins Hondius hafa leitt í ljós að smitið hefur borist milli manna. Þessu greindi Aaron Motsoaledi, heilbrigðisráðherra Suður-Afríku, frá í dag.

Hann sagði suðurafrískri þingnefnd að bráðabirgðarannsóknir sýndu að hanta-veiran sem greindist væri af Andes-afbrigði. „Og það vill svo til að það er eina afbrigðið af 38 sem þekkt er að valdi smiti frá einni manneskju til annarrar.“

Hantaveiran hefur mörg afbrigði sem valda sýkingum. Hún kemur frá nagdýrum, rottum, músum og leðurblökum og er frekar sjaldgæf. Einkennin eru mismunandi eftir heimshlutum, en geta verið væg, alvarleg og lífshættuleg.

Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómalækningum við læknadeild Háskóla Íslands, segir að það séu yfir 40 tegundir eða afbrigði af hanta-veiru. Þær finnast í Asíu, Evrópu og Norður- og Suður-Ameríku. Veiran getur valdið allt frá einkennalausum sýkingum og yfir í alvarlegar sýkingar. Þær geta haft í för með sér öndunarbilun og áhrif á blóðrás og nýru.

„Í þeim tilvikum þá getur dánartíðnin verið mjög há, allt að áttatíu prósent,“ bendir Magnús á. Þegar veikindi eru komin á það stig er aðeins hægt að veita stuðningsmeðferð því ekkert bóluefni eða veirulyf er til.

#farið #hondius #stað #tenerife #til


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-06-hondius-farid-af-stad-til-tenerife-474374

📰 Aðrar fréttir

Gunnar Örn ráðinn sölustjóri Haga miðla
📅 01.10.2026 👁️ 0
Gunnar Örn ráðinn sölustjóri Haga miðla
Gunnar Örn Helgason hefur verið ráðinn sölustjóri Haga miðla, nýrrar rekstrareiningar Haga á sviði smásölumiðlunar. Gunnar býr yfir rúmlega 20 ára rey...
Óhugnanlegt atvik í Laugardal – Unglingur bundinn og skilinn eftir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Óhugnanlegt atvik í Laugardal – Unglingur bundinn og skilinn eftir
Unglingur í Laugardal var bundinn af samnemendum sínum og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss í september. Límband mun einnig hafa verið sett yfir ...
Fótalaus eftir að læknar fjarlægðu rangan fót - „Það er einfaldlega engin afsökun til“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fótalaus eftir að læknar fjarlægðu rangan fót - „Það er einfaldlega engin afsökun til“
Bandarísk kona er fótalaus eftir að læknir fjarlægði fyrst rangan fót af henni. Konan krefst hárra skaðabóta.Breska blaðið The Daily Star greinir frá ...
Tæplega helmingur með íþyngjandi leigu þrátt fyrir batnandi stöðu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Tæplega helmingur með íþyngjandi leigu þrátt fyrir batnandi stöðu
Horfurnar hjá leigjendum virðast fara batnandi, samkvæmt nýrri leigumarkaðskönnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Þar kemur fram að leig...
Hungur sverfur að Jemenum
📅 01.10.2026 👁️ 0
Hungur sverfur að Jemenum
Sífellt fleiri börn í Jemen þjást af vannæringu. Eftir að stríðsátök brutust út á ný hafa 145.000 manns lagt á flótta. Alþjóða heilbrigðisstofnunin va...
Flydubai passenger describes hugging his children as plane nosedived during attack
📅 01.10.2026 👁️ 0
Flydubai passenger describes hugging his children as plane nosedived during attack
Adam Polovincik tells the BBC he told his young children "everything is going to be all right" as flight plunged more than 17,000ft (5,200m).
Væntingar um út­spil tengt gjalda­hækkunum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Væntingar um út­spil tengt gjalda­hækkunum - Vísir
„Viðsemjendur okkar eru að kalla eftir viðbragði við forsendubrestinum en við  erum á hinn bóginn líka að upplifa forsendubrest þar sem verðmætaauknin...
Allir níu neita sök í Straumsvíkurmálinu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Allir níu neita sök í Straumsvíkurmálinu
Allir níu sakborningarnir í Straumsvíkurmálinu neituðu sök við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Aðeins einn var viðstaddur þingfestin...
Leiðir skilja hjá Hrafn­hildi Helgu og Árna - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Leiðir skilja hjá Hrafn­hildi Helgu og Árna - Vísir
Hrafnhildur staðfesti tíðidin í samtali við Smartland fyrr í dag. Árni og Hrafnhildur hafa verið saman um árabil, gengu í hjónaband júní 2023 og eiga ...
Neituðu sök við þing­festingu Straumsvíkur­málsins - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Neituðu sök við þing­festingu Straumsvíkur­málsins - Vísir
Af karlmönnunum níu eru sex erlendir ríkisborgarar og þrír Íslendingar. Einn ákærðra, Arthur De Araujo Faria, mætti fyrir dómara en hinir átta tóku þá...
Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun - Vísir
Jóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir, 81 árs kennari og sjúkraliði, er meðal fjölmargra eldri borgara sem hafa tekið svefnlyf árum saman. Hún hóf notkun þe...
Þor­steinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garða­bænum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Þor­steinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garða­bænum - Vísir
Þetta kemur  fram í færslu Þorsteins á samfélagsmiðlinum Facebook. Á fasteignavef Vísis má sjá að um er að ræða glæsilegt og mikið endunrnýjað 288,4 f...
Vegir lokast vegna vatnavaxta
📅 01.10.2026 👁️ 1
Vegir lokast vegna vatnavaxta
Rigningar síðustu daga eru farnar að valda skemmdum á vegum á suðaustanverðu landinu.Þórsmerkurvegi var lokað fyrir umferð milli Nauthúsagils og Jökul...
Newborn baby found near Bangor may have been in water for weeks
📅 01.10.2026 👁️ 0
Newborn baby found near Bangor may have been in water for weeks
The body of the baby found along the north Wales shoreline was a girl, a post-mortem has revealed.
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu skipverja Bandero, um að fá haldlagningu aflétt af farsíma sínum, var hafnað.
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
Garry Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur brugðist við fregnum af áætlunum Rússa til þess að ráða hann og fleiri andófsmenn af dögum í s...
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur óvænt boðað til starfsmannafundar hjá fyrirtækinu eftir hádegi í dag. Frá þessu greina Vísir og mbl.i...
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
34 ára súdanskur flóttamaður hefur verið settur í gæsluvarðhald í Frakklandi, grunaður um að hafa nauðgað og myrt 93 ára konu á heimili hennar í Toulo...
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump Fréttin1. október 2026Erlent, TrumpLeave a Comment Fjórðungur bandarískra ful...
New four-stage cycling tour coming to the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 0
New four-stage cycling tour coming to the Canary Islands
The Canary Islands will host their first professional international stage cycling race next January, with a new Vuelta Ciclista a Canarias taking plac...
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun eftir hádegi. Vísir greindi fyrst frá fundinum og sagði að Hörður Arnarson forstjóri hefði bo...
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
📅 01.10.2026 👁️ 1
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
The Sikh activist from Dumbarton was arrested in 2017 in connection with alleged terror offences.
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
Fjórir karlmenn eru grunaðir um að hafa flutt fimm kíló af amfetamíni til landsins með hraðsendingu frá Þýskalandi. Þrír þeirra voru handteknir í byrj...
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá málinu í færslu á Facebook og skrifar að kærunefnd útboðsmála hafi úrskurðað útboðið ólöglegt...
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
Lil Wayne, sem heitir réttu nafni Dwayne Michael Carter Jr., virtist staðfesta trúlofunina í myndbandi sem birtist á Instagram-síðu rapparans B.G.  í ...
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
Samkvæmt upplýsingum frá HMS eru alls tæplega 460 nýjar íbúðir til sölu í Hafnarfirði, töluvert fleiri en í Kópavogi, 190, og Garðabæ, 286, en þó ekki...
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
📅 01.10.2026 👁️ 1
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sviði sóttvarnalæknis, segir slæmar og góðar fréttir að finna í ársskýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun á ...
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðsk...
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
Sex af níu stjórnarmönnum beindu því til útvarpsstjóra á fundi í gær að tilkynna Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, að RÚV tæki ekki þátt í Euro...
Er Ísland að fara að taka þátt í Eurovision?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Er Ísland að fara að taka þátt í Eurovision?
Á stjórnarfundi RÚV í gær var lögð fram bókun um að beina þeim tilmælum til útvarpsstjóra að hann tilkynni EBU, Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, að...
Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
Yfirlæknir og deildarstjóri á Landspítala gera athugasemdir við þátt Kveiks á RÚV þar sem fjallað var um notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum. ...
Fjórir í gæslu­varðhald eftir hrað­sendingu frá Þýska­landi - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fjórir í gæslu­varðhald eftir hrað­sendingu frá Þýska­landi - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þeir verði í gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikur, eða til 28. október. Málið varðar innflutning á fimm kílóum af ...
Four flights diverted due to thick fog at Tenerife North Airport
📅 01.10.2026 👁️ 1
Four flights diverted due to thick fog at Tenerife North Airport
Thick fog has disrupted operations at Tenerife North Airport this morning (Thursday), forcing four incoming flights to divert because of poor visibili...
Trump's AI rebrand causes 'unprecedented' demand for Slovenian website names
📅 01.10.2026 👁️ 1
Trump's AI rebrand causes 'unprecedented' demand for Slovenian website names
The president wants AI to be called super intelligence - or SI - the same initials used by Slovenian domains.
Ekkert svig­rúm í tengslum við kjara­samninga og tví­sýnt með fram­haldið - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ekkert svig­rúm í tengslum við kjara­samninga og tví­sýnt með fram­haldið - Vísir
Einnig verður rætt við oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, sem segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, be...
Lét á­kærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu upp­námi“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lét á­kærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu upp­námi“ - Vísir
Aðalmeðferð í málinu hófst á þriðjudag og hélt vitnaleiðsla áfram í dag. Ntentes hefur þegar gefið skýrslu fyrir dómi auk þess sem hann hefur sætt gæs...
Snið­ganga banda­menn á NATO-fundum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Snið­ganga banda­menn á NATO-fundum - Vísir
Fundurinn á að vera haldinn í Póllandi seinna í október en á meðal þeirra sem hafa ekki fengið boð á hann eru Frakkar, Bretar og ríkisstjórnir Eystras...
Themed hotels are expanding international offerings in the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Themed hotels are expanding international offerings in the Canary Islands
Hotels in the Canary Islands are evolving. Distinctive architecture and nature-led experiences are giving holidaymakers more choice, while offering im...
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
Matthías Már Magnússon, útvarpsmaður og dagskrárstjóri Rásar 2, greinir frá því á Facebook-síðu að hann hafi greinst með krabbamein á dögunum. Fram un...
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fer hörðum orðum um Hildi Sverrisdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, í pistli á Facebook-s...
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingar í Kópavogi, gagnrýnir klúðrið varðandi útboð knattspyrnustúku við Kórinn. Algjör óvissa ríkir um framhaldið o...
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
Hjörleifur Björnsson skrúðgarðyrkjufræðingur, einn eigendanna, leggur áherslu á að hugsa um garðinn og fasteignina í heild. Mikilvægasta verkið sé nef...
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“ Borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, Hild­ur Björns­dótt­ir, leggst gegn stó...
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
📅 01.10.2026 👁️ 0
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, segist hafa séð leigubílstjórann Saint Paul Edeh, sem hann kallar „Heilagan Pál“ eða „Dýrlinginn“, r...
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
Matthías greindi frá tíðindunum á Facebook nú í morgun. „Fyrir tveim vikum endaði ég á Bráðamóttökunni sökum orkuleysis, var einhvern veginn alveg búi...
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
Sindri fór fyrst í heimsókn til hennar fyrir 12 árum eða árið 2014 en núna er hann mættur aftur og það á nýjan stað. Þau hjónin ákváðu að minnka við s...
What happened in failed execution of Christa Pike - and what next?
📅 01.10.2026 👁️ 1
What happened in failed execution of Christa Pike - and what next?
The convicted killer is in hospital in Tennessee after surviving two lethal injections, in a case that has raised many questions.
Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu
Ísland féll um tvö sæti í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar og hefur fallið um níu sæti á fimm árum.Ísland er í 26. sæti en...
Travelodge failed Maidenhead sex assault victim 'at every stage'
📅 01.10.2026 👁️ 1
Travelodge failed Maidenhead sex assault victim 'at every stage'
The review comes after a woman spoke out after being assaulted in a Maidenhead hotel.
Allt í hnút á Norður-Írlandi
📅 01.10.2026 👁️ 2
Allt í hnút á Norður-Írlandi
Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um...