Borgarstjórn samþykkti 3. febrúar 2026 að fella niður gjaldtöku í strætó vegna reykvískra barna á grunnskólaaldri frá 1. maí 2026. Á meðan unnið er að fullri innleiðingu verður farið í brúarlausn þar sem börn fá tímabilskort í maí og júní. Börn undir 12 ára aldri fá þegar frítt í strætó.
Hnökrar hafa komið upp í framkvæmdinni og í ljósi skráningar og meðferðar persónuupplýsinga sem berast Strætó er verið að setja upp stafræna lausn þar sem foreldrar geta sótt um kort fyrir börn sín.
Í tilkynningu frá borginni segir að foreldrar fái upplýsingapóst eftir helgi.
Tillaga meirihlutans um gjaldfrjálsan strætó fyrir börn var samþykkt í febrúar. Þá kom fram að markmiðið væri að tryggja bætt aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum og þannig væri hægt að draga úr foreldraskutli í skóla-, íþrótta- og frístund og um leið draga úr umferðarþunga.