Enginn munur er á fjölda þeirra sem hyggjast segja já og þeirra sem ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið 29. ágúst.
Þetta sýna niðurstöður nýrrar Gallup-könnunar sem gerð var fyrir hreyfinguna Áfram Ísland en hún er andvíg aðildarviðræðum. Fjallað er um könnunina í Morgunblaðinu í dag.
46% aðspurðra eru andvíg áframhaldandi aðildarviðræðum og sömuleiðis eru 46% hlynnt. Átta prósent eru enn óákveðin.
Í Reykjavík eru 55% aðspurðra fylgjandi áframhaldandi aðildarviðræðum en 56% andvíg á landsbyggðinni. Um helmingur þeirra sem búa í Kraganum er fylgjandi og rúm 40% á móti.
Mikill munur milli kjósenda stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka
Líkt og búast má við eru kjósendur stjórnarflokkanna, sér í lagi Viðreisnar og Samfylkingar, hlynntir frekari aðildarviðræðum og kjósendur . Það segja 93% kjósenda Viðreisnar og 89% kjósenda Samfylkingar. 70% kjósenda Flokks fólksins eru fylgjandi áframhaldandi aðildarviðræðum.
Sömuleiðis mælist andstaðan mikil meðal kjósenda stjórnarandstöðuflokkanna. 95% kjósenda Miðflokksins hyggst segja nei þann 29. ágúst. Það ætla 82% kjósenda Sjálfstæðisflokksins að gera og 69% þeirra sem kjósa Framsókn.
Könnun Gallup var gerð dagana 15. til 30. júlí. 1.996 manns, 18 ára og eldri, voru í úrtaki af öllu landinu. 804 svöruðu og svarhlutfall því 40,3%.