Hlutabréf í íslenska lyfjafyrirtækinu Oculis féllu um 23,5% í Nasdaq kauphöllinni í dag. Það má rekja til tilkynningar sem fyrirtækið sendi frá sér rétt í þessu um niðurstöður prófana á augndropum sem stóðu ekki undir væntingum.
Um var að ræða prófanir á OCS-01 augndropum hjá sjúklingum með sjónhimnubjúg af völdum sykursýki, en í ljósi niðurstöðunnar mun fyrirtækið ekki sækja um leyfi fyrir lyfinu hjá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA).
Í tilkynningu til Kauphallar er haft eftir Riad Sherif, M.D., framkvæmdastjóra Oculis, að niðurstaðan sé mikil vonbrigði fyrir fyrirtækið.
„Við erum að sjálfsögðu vonsvikin yfir því að umtalsverð og varanleg minnkun á þykkt sjónhimnunnar sem kom fram í báðum rannsóknunum skilaði sér ekki í bætingu á BCVA kvarða í viku 52. Í þessum tveimur rannsóknum vann teymið okkar með 119 rannsóknarstöðvum um allan heim í fjölmörgum löndum og sýndi fram á framúrskarandi framkvæmdahæfni,“ er haft eftir Riad, sem þakkaði rannsakendum og þátttakendum í tilrauninni.
Þá segir hann einnig að sterk fjárhagsleg staða muni gera þeim kleift að halda áfram að þróa önnur lyf og að fyrirtækið muni nú beina sér af fullum þunga að þróun næstu verkefna.