Hjólhýsi fauk á hliðina og þveraði veginn um Gilsfjarðarbrú skömmu fyrir klukkan fimm síðdegis. Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, segir engum hafa orðið meint af.
Hann hvetur fólk til að huga að veðri og veðurspá á ferðalögum. Það sé mjög hvasst á þessu svæði.
Brúin var opnuð aftur um klukkan 17:40.