Hildur Björns undir hnaus­þykkum feldi - Vísir

Hildur Björns undir hnaus­þykkum feldi - Vísir

Hildur Björns undir hnaus­þykkum feldi - Vísir

Búist er við því að Hildur gefi út í dag eða á morgun hvern hún kallar til fyrsta fundar í formlegar meirihlutaviðræður í Reykjavíkurborg. Ríkir veruleg spenna um hver eða hverjir það verða sem Hildur kallar til leiks. Í gær talaði Hildur við alla fulltrúa þeirra flokka sem náðu inn kjörnum fulltrúum í borginni og þreifaði á þeim. Hildur er með keflið eftir stórsigur í borginni.

Björg óspennt fyrir samstarf með Miðflokki

Eftir því sem Vísir kemst næst, eftir að hafa rætt við fjölmarga sem að viðræðunum koma og/eða standa utan þeirra, viðraði Hildur þar meðal annars þá hugmynd, sem Morgunblaðið kynnti, að komið yrði áeins konar breiðfylkingu Sjálfstæðisflokks, Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks. 

Þær hugmyndir flugu ekki hátt hjá Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar sem var býsna skýr um það í kosningabaráttunni að henni hugnaðist ekki samstarf með Miðflokki. 

Eins og kom fram í kosningabaráttunni er Björg Magnúsdóttir minna en spennt fyrir samstarfi við Miðflokkinn.vísir/lýður valberg

Ástæðan fyrir því að Hildur skoðar þennan möguleika er augljóslega sú að fyrir dyrum standa fjölmargar erfiðar ákvarðanir og Hildur gæti viljað taka högg af slíku af Sjálfstæðisflokknum.

Miðflokksmenn eru flestir áfram um tveggja flokka meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokk en eins og Vísir greindi frá í gær er tvennt sem Hildur þarf að yfirstíga áður en það getur orðið að veruleika.

„Níð“ Miðflokksmanna gæti staðið í Hildi

Flótti Sjálfstæðismanna yfir í Miðflokkinn, þeirra Helga Áss Grétarssonar og síðar Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur var að mörgu leyti fyrirsjáanlegur. Hildur þurfti að taka til í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins áður en til kosningabaráttunnar kom og var það eitt af því helsta sem Bessí Jóhannsdóttir og þau í kjörnefnd Varðar litu til þegar þau röðuðu á lista: Eru þeir sem listann skipa hollir foringjanum? 

Hildur Björnsdóttir fagnar sigri. Nú er að vinna úr þeim spilum sem henni hafa verið gefin og menn bíða spenntir eftir ákvörðun hennar. Hvað skal gera?vísir/vilhelm

Eftir áralanga óeiningu innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins var talið að nóg væri komið af slíku. Hildur var orðin móð við innanhúsátök og nægir þar að nefna til dæmis stólaslag við Mörtu Guðjónsdóttur.

Allt þetta væri sök sér ef fyrrverandi borgarfulltrúar hefðu ekki tekið til óspilltra málanna og sakað Hildi um það sem Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins kallar níð; að vera áfram um Borgarlínuna. Mun Hildur geta kyngt þeim ávirðingum?

Og það er þá hitt atriðið sem gæti sett strik í reikninginn hvað varðar ákvörðunina sem Hildur stendur frammi fyrir. Ari Edwald oddviti Miðflokksins fór hart fram gegn samgöngusáttmálanum, svo mjög að því yrði tekið sem svo að hann væri að ganga á bak orða sinna ef sá sáttmáli verður ekki skorinn upp.

Er betra fyrir Hildi að hafa Miðflokkinn innan tjalds og láta hann pissa út eða ólmann í minnihluta. Hildur hefur sagt að gott samstarf milli allra borgarfulltrúa skipti verulegu máli.

Fullir vasar af tillögum

Þá er sá möguleiki í stöðunni fyrir Hildi að kalla að borðinu þau Björgu Magnúsdóttur úr Viðreisn og Einar Þorsteinsson úr Framsókn til viðræðna, en samanlagt eru þeir flokkar með 12 manna meirihluta. Þau voru bæði mjög skýr um það að þeim þætti það óðs manns æði að vilja kasta Borgarlínunni fyrir róða.

Einar segist pollrólegur, hann er með fulla vasa af hugmyndum sem hann vill óður og uppvægur koma til framkvæmda.vísir/ívar

„Hildur er með keflið,“ segir Einar í stuttu samtali við Vísi. Hildur ákveður skref og Einar hefur ekki farið leynt með að hann sé tilbúinn til viðræðna með öllum nema Samfylkingu. 

„Það stendur. Aðalatriðið er það að ná að knýja fram ákveðnar breytingar sem við höfum talað fyrir. Við erum með fulla vasa af tillögum sem við viljum koma til framkvæmda. Við erum eðli máls samkvæmt tilbúin til viðræðna um þær og önnur góð mál sem aðrir flokkar kunna að vilja þrýsta á um. Vilji kjósenda var skýr, þeir vilja að stefnunni sé breytt og fyrir því höfum við talað alla tíð.“

Björg gæti komið með fjármálaráðherrann

Svo mörg voru þau orð. Staðan er flókin en menn vænta þess að Hildur gefi eitthvað út í dag eða í síðasta lagi á morgun. Ýmislegt er hagfellt þeim Einari og Björgu. Enn og aftur er það Borgarlínan sem kallar fram spurninga og samningar sem fyrir liggja við ríkið. 

Það fór ekki hátt í kosningabaráttunni en samningar við ríkið í tengslum við samgöngumálin skipta gríðarlega miklu máli. Og þar kemur til kasta flokksbróður Bjargar, Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra.vísir/anton brink

Ef samgöngusáttmálinn yrði að undirlagi borgarstjórnar rifinn upp gæti ríkið forðað sér; vilja þá líklega fresta framkvæmdum um ófyrirsjáanlega tíð því ríkiskassinn er galtómur. Það gæti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér.

Afar ólíklegt er að Hildur reyni meirihlutaviðræður við Samfylkingu og Pétur Marteinsson, hún talaði mestan part fyrir breytingum og hvernig á að kynna slíkar breytingar þegar Samfylkingin hefur verið við stjórn Reykjavíkurborgar í 16 ár?

Gott gæti verið fyrir Hildi að hafa Björgu með sér en fjármálaráðherrann Daði Már Kristófersson er vitaskuld flokksbróðir hennar. 

Ari Edwald hugsar nú tvennt: Fór hann of bratt í tal gegn samgöngusáttmálanum og: Hvað var Björn Ingi Hrafnsson að spá þegar hann tók við liðhlaupunum úr Sjálfstæðisflokknum?vísir/anton brink

Vandséð er að Hildur vilji skera upp herör við ríkið með því að taka upp samstarf við Miðflokkinn. Borgin á talsvert undir góðu veðri þaðan. Og Einar kom sem borgarstjóri að þeim samningi sem um ræðir, við Sigurð Inga Jóhannsson þáverandi samgönguráðherra og Bjarna Benediktsson þáverandi fjármálaráðherra. Einar hefur verið í vélarrúminu, það hefur Róbert Ragnarsson 2. maður á lista Viðreisnar einnig verið.

#björns #feldi #hildur #hnausþykkum #undir

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262886132d/hildur-bjorns-undir-hnausthykkum-feldi

📰 Aðrar fréttir

Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
📅 25.07.2026 👁️ 0
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
Britain Means Business, owned by the party’s deputy leader Richard Tice, made two donations of £250,000 in the run-up to the 2024 general election.
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
📅 25.07.2026 👁️ 0
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
Nethy Bridge residents were evacuated on Friday and a major incident was declared.
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
📅 25.07.2026 👁️ 0
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
Minnst einn lést þegar lítil flugvél hafnaði á húsþaki heimilis í Ganderkesee í norðurhluta Þýskalands í dag.
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir

Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
📅 25.07.2026 👁️ 1
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyr­ir rétt­um 400 ár­um keyptu nið­ur­lensk­ir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eft­ir að draga dilk á eft­ir s...
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir

Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Utanríkisráðuneyti á villigötum
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
📅 25.07.2026 👁️ 1
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
See inside Andy Burnham's first week in charge, with an exclusive behind the scenes look with Laura Kuenssberg.
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
Families visiting France from the UK and elsewhere have told the BBC how their holidays have become evacuation missions.
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæ­mundsen seg­ir sveita­líf­ið hafa mót­að sig mest. Þar hafi ein­fald­leiki lífs­ins orð­ið til þess...
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
📅 25.07.2026 👁️ 1
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...
Ari úr­skurðaður í gæslu­varð­hald á Kýpur - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ari úr­skurðaður í gæslu­varð­hald á Kýpur - Vísir
Þetta kemur fram í svari lögreglunnar á Kýpur við fyrirspurn fréttastofu. Þar kemur fram að evrópsk handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur Ara, s...
Rúmenar skjóta í fyrsta sinn niður dróna sem flugu inn í lofthelgi landsins
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rúmenar skjóta í fyrsta sinn niður dróna sem flugu inn í lofthelgi landsins
Rúmenar skutu niður dróna sem rauf lofthelgi landsins í dag, annan daginn í röð. Dróninn var skotinn niður af F-16 orrustuþotu. Rannsakendur segja að ...
Tíu bestu veitingastaðirnir hringinn í kringum landið
📅 25.07.2026 👁️ 1
Tíu bestu veitingastaðirnir hringinn í kringum landið
Fjölmargir ferðamenn nota vefinn Tripadvisor á ferðalögum sínum til að finna meðmæli með veitingastöðum, stöðum sem vert er að skoða og upplifunum, í ...
Piddington hótar að „segja sig úr Bretlandi“ vegna hælisleitendabúða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Piddington hótar að „segja sig úr Bretlandi“ vegna hælisleitendabúða
Íbúar í Piddington, örlitlu þorpi í Oxfordshire á Englandi, undirbúa táknræna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði frá Bretlandi. Ástæðan er fyrirhuguð...
Fólki gert að yfir­gefa heimili sín í út­hverfum Bordeaux - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fólki gert að yfir­gefa heimili sín í út­hverfum Bordeaux - Vísir
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns...
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið - Vísir

Yfir 220 þúsund þurft að flýja vegna eldanna
📅 25.07.2026 👁️ 1
Yfir 220 þúsund þurft að flýja vegna eldanna
Gríðarlegir gróðureldar hafa breiðst út í Frakklandi og á Spáni og samtals hafa yfir 220 þúsund manns þurft að flýja heimili sín.Spánn lýsti yfir neyð...
Vilja láta svipta ekkju leikarans yfir­ráðum yfir dánar­búinu - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vilja láta svipta ekkju leikarans yfir­ráðum yfir dánar­búinu - Vísir
Þeir Derrick Boseman og Kevin Boseman, bræður leikarans, hafa lagt fram beiðni til dómstóls í Los Angeles um að þvinga ekkju Black Panther-stjörnunnar...
Hiti allt að 18 stigum en hvasst fyrir austan
📅 25.07.2026 👁️ 1
Hiti allt að 18 stigum en hvasst fyrir austan
Í dag verður norðlæg átt, víða gola og léttskýjað á landinu. Hiti á bilinu 11-18 stig en dálítil væta og mun svalara á Norður- og Norðausturlandi.Fyri...
Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni
📅 25.07.2026 👁️ 1
Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni
Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni Helgi Guðnason prestur í FíladelfíuNúverandi fyrirkomulag gengur ekki mikið lengur Mynd: Hvítasunnukirkjan Fí...
Stöðvaður fyrir of hraðan akstur en reyndist vera eftir­lýstur - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Stöðvaður fyrir of hraðan akstur en reyndist vera eftir­lýstur - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í morgun en listinn er í lengri kantinum eftir nóttina....