Hellaklaustrið, Pechersk Lavra, í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði stendur í ljósum logum eftir árásir Rússa í nótt.
Klaustrið er það stærsta í landinu og hefur verið meðal helstu miðstöðva austurkristni frá stofnun þess árið 1051.
„Þak einnar heilögustu byggingu kristindómsins brennur,“ skrifar Epifíanus, erkibiskup úkraínsku rétttrúnaðarkirkjunnar á samfélagsmiðilinn X.
Borgarstjórinn í Kænugarði greinir frá því að tíu manns séu særðir eftir árásir næturinnar. Þar af hafi átta verið fluttir á sjúkrahús. Í landamæraborginni Kharkív fórust fimm í árásum í nótt og fimm særðust.