Leikarahjónin Zendaya og Tom Holland héldu brúðkaupsveislu með vinum sínum og vandamönnum á þriðjudag, eftir að hafa gift sig með leynd. Page Sic greinir frá að hjónin hafi fagnað með ástvinum sínum á Beaverbrook Hotel, sveitasetri í Surrey á Englandi.„Tom og Zendaya lögðu sig fram um að koma í veg fyrir að upplýsingar eða myndir kæmust út, svo hvorki gestum né starfsfólki var leyft að hafa farsíma sína með sér,“ sagði heimildarmaður við Sun á þriðjudag. Mun starfsfólk hótelsins hafa þurft að skrifa undir trúnaðarsamninga (NDA).
Héldu brúðkaupsveislu á sveitasetri í Surrey