Þetta segir í tilkynningu frá Veitum. Heitavatnsleysið stafar af viðhaldi á tengingu við dælustöð í Öskjuhlíð.
Einnig má búast við þrýstingsfalli á heitu vatni meðan á viðhaldi stendur í Hlíðum og Holtum, segir í tilkynningunni frá Veitum.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju.