Heimalningurinn Messi á Hellu er tíu daga gamall. Hann hefur sótt vinnuskólann í þorpinu og leikið sér með fótbolta.
Fjölskylda fann lambið langt úti í mýri rétt við þorpið á Hellu, eitt og yfirgefið. Hún ákvað að taka það heim til sín, sinna því þar og gefa því úrvalsmjólk úr pela.
Björgvin Geir Sigurðarson hefur séð einna mest um lambið, sem er hrútur, og hefur fengið nafnið Messi. Heimalningurinn vekur mikla athygli hjá krökkunum í vinnuskólanum en Björgvin, sem er 14 ára, tekur Messi oft með sér í vinnuna.
„Já, ég tek hann stundum með mér, þá er hann hress. Ég gef honum nóg að drekka og þá eltir hann okkur eins og hundur,” segir Björgvin.
Svo er hann góður í fótbolta eða hvað?
„Já, já, við tókum hann í gær í smá fótbolta, hann er alveg þokkalegur og þar kom nafnið Messi,” segir Björgvin.
Rakel Ýr Sigurðardóttir, flokkstjóri í vinnuskóla Rangárþings ytra, er ánægð með Messi í vinnuskólanum.
„Þetta er erfiðasti unglingurinn, nei, nei, þetta er gaman og lífgar upp á, bæði fyrir krakkana og fólk sem hittir okkur úti á götu,” segir Rakel.
Eru ekki allir hissa þegar þeir sjá lambið með ykkur?
„Jú, sérstaklega á þessum tíma ársins að sjá svona lítið lamb, en þetta er mjög gaman,” segir Rakel.
Fær hann bara mjólk hjá ykkur, eða fær hann líka arfa og gras?
„Stundum fer hann að éta arfa,“ segir Rakel.
„Hann byrjar stundum að narta í grasið en aðallega mjólk”, segir Björgvin.