Stofnunin NICE, sem heyrir undir heilbrigðisráðuneyti Bretlands, hefur ákveðið að bjóða upp á tvö ný próf til að greina endómetríósu á heilsugæslum á Bretlandi. Þetta verður gert til reynslu næstu þrjú ár. Prófin eru munnvatnspróf annars vegar og próf sem mælir hreyfingar garnanna hins vegar. Bæði prófin notast við gervigreind.
Talið er að endómetríósa hrjái einn af hverjum tíu sem fara á blæðingar.
„En ástæðan fyrir því að þeir eru að bjóða upp á þetta og mæla með þessu er að þó að það sé svolítill kostnaður við þessa greiningu þá er það sennilega þess virði vegna þess að ef sjúkdómurinn er greindur snemma og gripið inn í snemma, þá verða afleiðingarnar mun minni,“ segir Jón Ívar Einarsson, skurðlæknir hjá Klíníkinni sem sérhæfir sig í aðgerðum vegna endómetríósu.
Margra ára bið eftir greiningu
Hann segist sjálfur hafa boðið upp á munnvatnsprófið í um ár. Það sé mjög nákvæmt en vegna kostnaðar nýti fáar konur sér það. Prófið kostar um hundrað og fimmtíu þúsund krónur.
Endómetríósa hefur hingað til verið greind með sögu og skoðun eða með aðgerð sem er töluvert inngrip. Frá því að kona leitar fyrst til læknis líða að meðaltali sjö til níu ár þangað til hún fær greiningu.
„Ég sé þessar konur ansi oft sem hafa gengið á milli lækna og ekki fengið þessa greiningu,“ segir Jón Ívar. Hann segir nýju prófin geta gefið þessum konum ákveðið vald.
„Mér finnst að miðað við að NICE sé að gera þessa þriggja ára tilraun, og það liggja mjög góð gögn á bak við þessi próf, þá finnst mér að stjórnvöld hér, eða heilbrigðisyfirvöld, ættu alvarlega að íhuga að taka upp þessi próf hér og þá jafnvel fylgja dæmi NICE og nota þetta helst í heilsugæslunni til að grípa þessar konur snemma.“
Til mikils að vinna að grípa inn í fyrr
Jón Ívar segir til mikils að vinna að greina og grípa inn í endómetríósu fyrr. Það minnki verki kvennanna, dragi úr tíma sem þær missa úr vinnu og sporni gegn ófrjósemi en endómetríósa finnst hjá um helmingi kvenna með ófrjósemi.
„Þessi sjúkdómur er því miður enn þá vangreindur og hefur gríðarlega mikil áhrif á líf þessara kvenna,“ segir Jón Ívar. Samkvæmt niðurstöðum gæðakönnunar sem Klíníkin gerði fyrir síðasta ár missa konur með endómetríósu að meðaltali nær þrjá mánuði úr vinnu. Eftir aðgerð var vinnutap nánast ekkert.
Auk þessara tveggja prófa er farið að greina endómetríósu með blóðprufu í Bandaríkjunum. Jón Ívar segir mikið að gerast í þróun á greiningarleiðum á allra síðustu árum.