„Hefurðu glatað glórunni?“
Þáttarstjórnandinn Piers Morgan kom Íslendingnum Samúel Guðmundssyni til varnar í rökræðum við rabbínan Shmuley Boteach.
Íslendingurinn Samúel Guðmundsson, sem vakti heimsathygli þegar hann blótaði Ísrael á myndbandi með bandaríska rabbínanum og fjölmiðlamanninum Shmuley Boteach á Akureyri í síðustu viku, eftir að hafa þóst vera aðdáandi hans, kom fram í spjallþætti Piers Morgan í dag, sem sjá má hér fyrir neðan.
Í þættinum mættust þeir tveir í fyrsta skipti eftir að Samúel tók upp stutt myndband með honum og mótmælti þjóðarmorði Ísraels á Gaza, sem alþjóðastofnanir hafa sömuleiðis gert, en var svo eltur af rabbínanum í kjölfarið á lengra myndbandi sem hann deildi með fylgismönnum sínum.
Morgan bendti á að Shmuley rabbíni hefði fengið „viðstöðulaust neikvæð viðbrögð“ undir myndbandi sem hann birti þar sem hann elti Samúel og kærustu hans eftir að Samúel blótaði Ísrael.
Piers Morgan tók í þættinum harða afstöðu gagnvart Shmuley rabbína en spurði einnig Samúel gagnrýninna spurninga.
„Þú segir að hann vilji að Gyðingar deyi. Hefurðu glatað glórunni?“ spurði Piers Morgan Shmuley.
„Hættu að ljúga. Hættu að ljúga,“ segir Piers Morgan á tímabili í þættinum við rabbínan. Þá gagnrýndi hann rabbínan harðlega fyrir að elta kærustu Samúels á myndbandi, þegar hún reyndi augljóslega að bægja sér undan.
Shmuley rabbíni hélt því fram í þættinum að 200 Palestínumenn hefðu fengið hæli á Íslandi. Samkvæmt tölum Þjóðskrár var 961 palestínskur borgari á Íslandi 1. ágúst síðastliðnn, en ekki hafa allir þeirra fengið hæli. 995 Palestínumenn hafa sótt um hæli á Íslandi frá árinu 2019. Um helmingur þeirra hafa fengið hæli eða dvalarleyfi.
Þá hélt rabbíninn því fram að þeldökkum væri ekki hleypt til landsins og sakaði Íslendinga um hræsni fyrir að gagnrýna þjóðarmorð Ísraels, sem hann afneitar, en útilokaði annað fólk.
Morgan tók hljóðið af Shmuley rabbína á tímabili þar sem hann virti ekki stjórn hans á þættinum.
Þá sýndi Morgan brot úr myndböndum þar sem hann deilir við fólk víða um heim og kallar það Gyðingahatara.
Fyrst var greint frá atvikinu á Akureyri á vef Mannlífs í síðustu viku.