Hayden Panettiere sagði frá kynferðisofbeldi í Hollywood skömmu fyrir andlátið – Fleiri hafa látist skömmu eftir að hafa opnað sig um kynferðisofbeldi í bransanum

Hayden Panettiere sagði frá kynferðisofbeldi í Hollywood skömmu fyrir andlátið – Fleiri hafa látist skömmu eftir að hafa opnað sig um kynferðisofbeldi í bransanum

Hayden Panettiere sagði frá kynferðisofbeldi í Hollywood skömmu fyrir andlátið – Fleiri hafa látist skömmu eftir að hafa opnað sig um kynferðisofbeldi í bransanum

Leikkonan Hayden Panettiere, sem lést á sunnudag aðeins 36 ára gömul, hafði aðeins nokkrum mánuðum fyrir andlátið stigið fram með ítarlegar frásagnir af því hvernig var að alast upp sem barnastjarna í Hollywood og aðstæðum þar sem hún sagðist hafa verið mótuð til hlýðni frá unga aldri.

Panettiere lést 16. ágúst. Fjölskylda hennar staðfesti andlátið í gegnum talsmann hennar en dánarorsök hefur ekki verið gerð opinber. Málið er til rannsóknar.


Lögreglan í Greenville í Suður Karólínu hefur jafnframt sagt að bráðabirgðarannsókn hafi ekki leitt neitt í ljós sem bendir til þess að um saknæmt athæfi hafi verið að ræða.

„Að segja nei hefði í raun aldrei verið valkostur“

Panettiere gaf út bókina This Is Me: A Reckoning þann 19. maí síðastliðinn og ræddi á sama tíma opinberlega um ýmsar dökkar hliðar þess að hafa alist upp innan bandaríska skemmtanaiðnaðarins.

„I was groomed“

Panettiere hóf feril sinn þegar hún var barn og lýsti því í viðtali við The Hollywood Reporter að hún hefði orðið fyrir grooming, eða skipulagðri tælingu, í leiklistarbransanum. Hún sagði að henni hefði frá unga aldri verið kennt að þóknast öðrum og fylgja fyrirmælum fullorðinna.

Að segja nei hefði í raun aldrei verið valkostur þegar kæmi að vinnunni, að hennar sögn. Hún sagði þessa stöðugu þörf fyrir að þóknast öðrum og skort á stjórn yfir eigin lífi síðar hafa haft mikil áhrif á hana og tengdi það meðal annars við fíknivanda sinn.

Vinkona gabbaði hana upp í rúm með frægum manni

Panettiere sagði frá því að hafa verið stödd á svokallaðri súper snekkju við Suður Frakkland þegar hún var 18 ára. Með henni var kona sem hún lýsti sem einni af sínum nánustu trúnaðarvinkonum.

Undir lok ferðarinnar hafi konan beðið hana að koma með sér niður í einkaklefa á skipinu. Þar beið „frægur breskur söngvari og lagahöfundur á þrítugsaldri“, ber að ofan í rúmi undir sæng. Panettiere nafngreindi manninn ekki.

Að sögn Panettiere hvíslaði vinkonan síðan að henni að hún vildi að hún færi upp í rúmið til mannsins og yfirgaf herbergið. Panettiere sagðist fyrst hafa hlýtt í losti en áttaði sig síðan á stöðunni, sagði manninum að ekkert myndi gerast og yfirgaf herbergið.

Hún sagði reynsluna hafa verið sérstaklega mikið áfall vegna þess að hún hafði treyst konunni fullkomlega. Hún lýsti því síðar að áralöng reynsla af því að vera „stjórnað“ af fullorðnu fólki í skemmtanabransanum hefði kennt henni að treysta fólkinu í kringum sig og bæla niður eigin eðlishvöt.

Þegar Panettiere rifjaði atvikið upp sagði hún að þótt hún hefði talið sig mjög þroskaða þegar hún var 18 ára hefði hún í raun ekki haft þroska til að gera sér fulla grein fyrir hættunum í kringum sig. Hún sagði einnig að þegar hún áttaði sig á því hvað væri að gerast hefði hún fundið að fólkinu í kringum hana fyndist þetta ekkert óvenjulegt.

13 ára í kossaatriði með fullorðnum manni

Panettiere rifjaði einnig upp tökur á kvikmyndinni Raising Helen frá árinu 2004.

Hún var aðeins 13 ára þegar hún tók þar upp fyrsta ástar- og kossaatriði lífs síns með leikara sem hún lýsti sem manni á þrítugsaldri eða rúmlega tvítugum. Entertainment Weekly segir að maðurinn hafi verið að minnsta kosti sjö árum eldri en hún.

Panettiere sagði móður sína hafa staðið hjá á meðan atriðið var tekið upp og lýsti því hvernig fullorðni leikarinn notaði tunguna við kossinn án þess að hún hefði átt von á því.

Hún sagðist hafa orðið mjög hissa en ekki viljað gera mikið mál úr því. Hún hefði einfaldlega hugsað með sér að svona væri þetta þá gert.

Frásögnin vakti sérstaka athygli í ljósi þess hvernig Panettiere lýsti sjálf uppvexti sínum í bransanum, að hún hefði verið alin upp við að hlýða og að „nei“ hefði ekki verið raunverulegur valkostur.

Sagði Óskarsverðlaunahafa hafa berað sig

Í bókinni greindi Panettiere jafnframt frá öðru atviki þegar hún var 19 ára.

Hún sagðist hafa verið í samkvæmi þegar maður sem hún sagði vera Óskarsverðlaunahafa sem var í miklum metum í Hollywood afhjúpaði kynfæri sín fyrir henni þegar hún var að yfirgefa svæðið. Hún nafngreindi manninn ekki.

Á síðustu mánuðum ævi sinnar hafði Panettiere byrjað að tala mun opinskár um reynslu sína sem barnastjarna, það sem hún sjálf kallaði „grooming“

Panettiere sagði atvikið hafa komið henni algjörlega í opna skjöldu. Fram að þessu hefði hún almennt upplifað karlmenn í Hollywood sem kurteisa, þótt hún hefði orðið fyrir óviðeigandi athugasemdum og hegðun áður.

Óttaðist lögsóknir og að þurfa að mæta fólkinu aftur

Panettiere var í kjölfar útgáfu bókarinnar spurð hvers vegna hún hefði ákveðið að nafngreina ekki þá frægu einstaklinga sem komu fyrir í þessum frásögnum.

Hún sagði eina ástæðuna vera að bransinn hefði lítið breyst. Einnig sagði hún að um væri að ræða fólk sem hún gæti þurft að hitta aftur.

Hún sagði jafnframt við The Hollywood Reporter að ákvörðunin hefði verið tekin til að vernda sjálfa sig og fyrirtæki sitt fyrir mögulegum lögsóknum frá mjög reiðu frægu fólki.

Í Tamron Hall Show sagði hún jafnframt að hún hefði viljað segja sína eigin sögu án þess að draga aðra í svaðið opinberlega, þótt hluti hennar vildi vissulega afhjúpa „þetta hyski“. Hún bætti síðan við að þetta væri þrátt fyrir allt iðnaður sem hún þyrfti að geta starfað í.

Frásagnirnar birtust aðeins þremur mánuðum fyrir andlátið

Tímasetningin á dauða hennar vekur því óhjákvæmilega athygli. Panettiere gaf út bókina 19. maí og fór í kjölfarið í fjölmiðlaviðtöl þar sem hún ræddi þessar frásagnir opinberlega. Hún lést 16. ágúst, tæpum þremur mánuðum síðar.

Það er hins vegar rétt að taka fram að opinberlega er ennþá ekkert sem tengir dauða Panettiere við þessar frásagnir eða ásakanir hennar. Dánarorsök hefur ekki verið tilkynnt og lögregla segir bráðabirgðarannsóknina ekki hafa sýnt merki um saknæmt athæfi eða grunsamlegar kringumstæður.

Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að á síðustu mánuðum ævi sinnar hafði Panettiere byrjað að tala mun opinskár um reynslu sína sem barnastjarna, það sem hún sjálf kallaði „grooming“, skort sinn á raunverulegu valdi til að segja nei og kynferðisleg atvik sem hún sagðist hafa lent í á unglingsárum sínum og sem ung kona í Hollywood.

Svipað samhengi vakti athygli eftir dauða Anne Heche

Andlát Panettiere hefur orðið til þess að umræður hafa skotið upp kollinum þar sem því er líkt við aðstæður í kringum dauða leikkonunnar Anne Heche árið 2022. Heche hafði skömmu áður lokið tökum á Lifetime myndinni Girl in Room 13, sem fjallaði um mansal og kynferðislega misnotkun.

Verkefnið tengdist málefni sem Heche hafði sjálf verið að rannsaka og tala um opinberlega. Eftir dauða hennar sagði leikstjórinn Elisabeth Röhm að Heche hefði verið sérstaklega áhugasöm um að vekja athygli á ofbeldi gegn konum í Hollywood og mansali tengdu því, meðal annars í ljósi þess að hún hafði sjálf nýlega greint opinberlega frá kynferðislegu ofbeldi sem hún sagðist hafa orðið fyrir.

Eftir dauða Heche fóru jafnframt á kreik fullyrðingar um að hún hefði verið að vinna að rannsókn eða heimildarmynd um barnaníð í Hollywood og/eða Jeffrey Epstein. Engar traustar heimildir hafa þó staðfest þær fullyrðingar. Girl in Room 13 var leikin kvikmynd um mansal en ekki rannsókn á Epstein eða meintum barnaníðshring í Hollywood.

Samhengið er því að nokkru leyti sambærilegt við síðustu mánuði í lífi Panettiere. Báðar höfðu þær skömmu fyrir andlát sitt tekið þátt í opinberri umræðu um kynferðislegt ofbeldi í Hollywood, misnotkun og varnarleysi ungra kvenna.

Fleiri sambærileg tilfelli

Panettiere og Heche eru ekki einu manneskjurnar úr skemmtanaiðnaðinum sem hafa látist skömmu eftir að hafa rætt opinberlega um kynferðislegt ofbeldi eða misnotkun.

August Ames, 23 ára leikkona í fullorðinsmyndaiðnaðinum, opnaði sig árið 2017 um kynferðislegt ofbeldi sem hún sagðist hafa orðið fyrir í bransanum. Hún lést innan við þremur mánuðum síðar og var dauði hennar úrskurðaður sjálfsvíg.

Anthony Bourdain varð áberandi stuðningsmaður #MeToo hreyfingarinnar eftir ásakanir Asia Argento á hendur Harvey Weinstein og talaði opinskátt um kynferðisofbeldi í bransanum og valdakerfi sem vernduðu gerendur. Hann lést um átta mánuðum síðar og var dauði hans úrskurðaður sjálfsvíg.

Isaac Kappy fór árið 2018 að saka þekkta einstaklinga í Hollywood opinberlega um barnaníð og tala um meintan barnaníðshring. Hann lést um níu mánuðum síðar.

Tekið skal fram að ekki hefur tekist að sanna tengsl dauða þessara aðila og þess að þau opnuðu sig um skipulagt kynferðisofbeldi og mansal í Hollywood.

 

 


#frá #hayden #kynferðisofbeldi #panettiere #sagði


Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/forsida/hayden-panettiere-sagdi-fra-kynferdisofbeldi-i-hollywood-skommu-fyrir-andlatid-fleiri-hafa-latist-skommu-eftir-ad-hafa-opnad-sig-um-kynferdisofbeldi-i-bransanum/

📰 Aðrar fréttir

„Viljum ekki leggja börnin okkar að veði til að komast í skólann“
📅 02.10.2026 👁️ 0
„Viljum ekki leggja börnin okkar að veði til að komast í skólann“
Foreldrar skólabarna í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla segja tímaspursmál hvenær slys verður þegar skólabíll ekur með börn þeirra um Kambanesskriður...
Búið að opna veginn um Eyrarhlíð
📅 02.10.2026 👁️ 0
Búið að opna veginn um Eyrarhlíð
Vegurinn um Eyrarhlíð, milli Hnífsdals og Ísafjarðar, hefur verið opnaður á ný. Frá þessu greinir lögreglan á Vesturlandi.Aurskriða féll á veginn fyrr...
Two men charged with terrorism offences in Manchester
📅 02.10.2026 👁️ 0
Two men charged with terrorism offences in Manchester
The pair were arrested in the Northern Quarter area of the city on the eve of Yom Kippur.
Þórarinn varar við óvæntri afleiðingu skattahækkunar: „Helgarpabbar landsins dæmdir í eilífa útlegð“
📅 02.10.2026 👁️ 0
Þórarinn varar við óvæntri afleiðingu skattahækkunar: „Helgarpabbar landsins dæmdir í eilífa útlegð“
Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón heldur áfram að vekja líflegar umræður, en eins og greint hefur verið frá stendur til að hækka hann úr 11%...
Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
📅 02.10.2026 👁️ 0
Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsmálaráðherra segir að það sé eftirsjá að Herði Arnarsyni fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar. Ekkert sé hæ...
Staðsetning Íslands mikilvæg fyrir Kanada
📅 02.10.2026 👁️ 0
Staðsetning Íslands mikilvæg fyrir Kanada
Ógn Rússa á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum er alvarleg. Þetta segir varnarmálaráðherra Kanada. Rússar beiti fjölþáttaógnum og drónum á mikilvæga i...
One dead after lorry overturns on motorway in Tenerife
📅 02.10.2026 👁️ 0
One dead after lorry overturns on motorway in Tenerife
One person has died and several others have been injured following a serious accident involving an overturned lorry and numerous vehicles on the TF-5 ...
Bíll í ljósum logum á Reykjanesbrautinni
📅 02.10.2026 👁️ 0
Bíll í ljósum logum á Reykjanesbrautinni
Bíll stendur í ljósum logum á Reykjanesbrautinni, stutt innan við Grindavíkurafleggjara. Viðbragð á vegum Brunavarna Suðurnesja er á leið á vettvang e...
Í­búar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vega­gerðinni - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Í­búar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vega­gerðinni - Vísir
Reikningar hrönnuðust inn á heimabanka íbúa og einn íbúi sem Vísir ræddi við fékk rukkanir upp á tæplega hálfa milljón króna samtals, meðal annars fyr...
Í beinni: Endurhæfum Reykjalund
📅 02.10.2026 👁️ 0
Í beinni: Endurhæfum Reykjalund
Hér má horfa á beina útsendingu frá söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund til styrktar endurhæfingarmiðstöðinni að Reykjalundi í Mosfells...
Christa Pike unconscious and on ventilator after botched execution, lawyer says
📅 02.10.2026 👁️ 0
Christa Pike unconscious and on ventilator after botched execution, lawyer says
As of Thursday night, Pike remained critically ill and is being treated at a hospital in Nashville, Tennessee.
Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
📅 02.10.2026 👁️ 1
Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) lét í vor gera könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Hún var lögð fyrir rúmlega fjögur þúsu...
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
📅 02.10.2026 👁️ 1
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
Counter terror police say the further charge comes after a "hugely intensive and complex investigation".
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
📅 02.10.2026 👁️ 1
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
Íbúum á Hornafirði brá mörgum heldur betur í brún þegar fyrstu reikningar fyrir að keyra yfir hringveginn yfir Hornafjarðarfljót voru sendir út í dag....
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
Tillögur ríkisstjórnar Spánar, sem áttu að leysa húsnæðiskreppuna sem hefur leitt af sér mikla mótmælaöldu í landinu, voru felldar á spænska þinginu í...
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
📅 02.10.2026 👁️ 1
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
Hákon, nýkrýndur Noregskonungur, setti norska stórþingið í fyrsta sinn í dag sem þjóðhöfðingi landsins.Við setninguna flutti hann ræðu þar sem hann sa...
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
📅 02.10.2026 👁️ 1
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
Eyrarhlíð, vegurinn milli Hnífsdals og Ísafjarðar, er lokaður vegna aurskriðu sem féll á veginn.
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
Lögregla hefur lokað veginum um Eyrarhlíð á Vestfjörðum eftir að aurskriða féll yfir veginn. 
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
📅 02.10.2026 👁️ 1
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
Heimsendingarfyrirtækið Wolt segir fullyrðingar um að sendlar fyrirtækisins starfi í svokallaðri gerviverktöku rangar.Gerviverktaka eigi við þegar ein...
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
📅 02.10.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
Lengi hefur verið plagsiður á Íslandi að kvarta undan sköttum og jafnvel koma sér undan að greiða þá. Nýlega kynnti fjármálaráðherra í hyggju væri að ...
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
Samkvæmt heimildum Vísis hefur einn starfsmaður á skrifstofu Reykjavíkurborgar í Borgartúni fengið staðfestingu á nóróveirusmiti í dag. Þá herma heimi...
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
📅 02.10.2026 👁️ 1
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
Thomas, also known as Danny Tommo, is accused of multiple offences in Dover in the spring.
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
Menntaskólinn í Reykjavík varð 180 ára í gær þó saga hans teygi sig aftur til 1056. Fjölbreytt dagskrá var á vegum skólans í vikunni, á þriðjudagskvöl...
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
Í dag, 2. október, er afmælisdagur Reynis heitins Árnasonar, en hann lést fyrir tæplega ári síðan, þá nýorðinn 78 ára gamall. Dóttir hans, næringarfræ...
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
„Það sló mig verulega að sjá í fréttum að það væru fjórtán pláss í notkun, fjórtán pláss í notkun á Vogi. Staðan á Íslandi er sú að það að eru á milli...
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
📅 02.10.2026 👁️ 1
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
Diesel has now hit an average of £2 a litre in the UK, the RAC motoring group says, with petrol prices also rising.
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir þær breytingar sem hún boðar á veitingu dvalarleyfa nauðsynlegar til þess að fá yfirsýn í mál...
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
Þetta var tilkynnt á fundi forsætisnefndar fyrr í vikunni. Þar segir að Heiða hafi skilað inn tilkynningu um veikindaleyfi ásamt læknisvottorði þar se...
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
📅 02.10.2026 👁️ 2
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni Fréttin2. október 2026Aðsend grein, InnlentLeave a Comment Mynd úr safni. Mannfjöldaspá ...
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
📅 02.10.2026 👁️ 2
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
Verslun á netinu hefur færst mjög í aukana hérlendis síðastliðin ár.„Það hefur verið mjög mikil aukning. Við fórum úr 23 milljörðum árið 2022 og sjáum...
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu þeirra þar sem þau fordæma viðbragðsleysi Samtaka atvinnulífsins við stöðunni.  „Tilefni fundarins er sú st...
Riot police clash with students as education protests rage in France
📅 02.10.2026 👁️ 2
Riot police clash with students as education protests rage in France
More than 600 schools have faced disruption as protests over standards and lack of teachers continue.
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
📅 02.10.2026 👁️ 2
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
Leiðtogar G7-ríkjanna hafa ákveðið að setja 100 milljónir tunna af olíu á markað til að stuðla að lækkun heimsmarkaðsverð á olíu.Greint var frá þessu ...
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, er komin í veikindaleyfi.Þetta kemur fram í fundargerð forsæti...
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
📅 02.10.2026 👁️ 2
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
Það er víða eldfimt í Frakklandi, jafnvel í orðsins fyllstu merkingu. Eldar hafa logað nokkuð víða um landið í dag í mótmælum sem framhaldsskólanemar ...
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
📅 02.10.2026 👁️ 2
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
The woman, known as Jane Doe, alleges she was raped by seven students at a fraternity house at the university in 2024.
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir barnavernd ekki hafa gripið nægilega hratt inn í mál þar sem staðfest sé að börn hafi verið vanrækt og mis...
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
Douglas segir frá þessu 42 ára gamla framhjáhaldi í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, sem kemur út þann 6. október næstkomandi.  Þegar kvikmyndin...
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
📅 02.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
The host says she is "fine" but getting checked after leaving This Morning midway through Friday's show.
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
📅 02.10.2026 👁️ 1
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
The host says she is "fine" but getting checked after leaving midway through Friday's This Morning.
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss. S...
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
Málflutningur var í aðalmeðferðinni í dag og fer héraðssaksóknari fram á 16 ár. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í...
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
📅 02.10.2026 👁️ 2
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
Móðir ungs manns með downs heilkennið og einhverfugreiningu sagði frá því í Þetta helst að hún hefði áhyggjur af heilsu hans. Eftir að hann flutti að ...
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
📅 02.10.2026 👁️ 1
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
Vitaliy Klitschko says Ukraine's capital is in a "very dramatic situation" as Russia hits critical infrastructure.
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
Enginn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins eins og stendur. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglun...
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þvertekur fyrir að ósætti hafi verið á milli hans og Harðar Arnarsonar sem lét í gær af störfum...
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
Héraðssaksóknari krefst hámarksrefsingar, eða 16 ára fangelsis, yfir Georgios Ntentes grískum manni sem er ákærður um að hafa banað portúgölskum manni...
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
📅 02.10.2026 👁️ 2
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hóp...
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
📅 02.10.2026 👁️ 1
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
The defeat raises pressure on Sánchez to call a snap election, after a series of scandals affecting his party and allies.