Stjórnsýslufræðingurinn Haukur Arnþórsson er í klemmu í dag. Hann er vinstrimaður Reykvíkingur en vill þó sjá breytingar í borginni og fella stefnu núverandi meirihluta, sem telst til vinstri. Hann segir á Facebook að kosningasjónvarpið í gær hafi litlu breytt um þessa klemmu sem hann finnur sig í, að vilja breytingar en á sama tíma meirihluta til vinstri.
„Kosningasjónvarpið í gærkvöldi breytti ekki miklu fyrir mig. Ég vil gerbreytta stefnu í Borginni og er vinstri sinnaður, en einmitt vinstri flokkarnir hafa verið við stjórn í ein sextán ár og það er þeirra stefna í helstu málum sem ég vil fella. Ég hafði gert mér vonir um að Samfylkingin tæki 180° beygju, að Pétur boðaði breytta sýn, en hann sló úr og í; varði Dags-stefnuna en vissi að hún höfðaði ekki til kjósenda og lofaði bótum. Hann þorði sennilega ekki að segja það sem hann meinar. “
Haukur segir að Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, sé ekki að boða nokkuð nýtt og því sé skársti kosturinn til vinstri oddviti Sósíalistaflokksins, Silja Sóley Birgisdóttir.
Helsta baráttumál stjórnsýslufræðingsins er að losna við flugvöllinn svo þar verði hægt að byggja íbúabyggð sem muni einkum gagnast þeim fjölmörgu sem starfa á stórum vinnustöðum miðsvæðisins sem og háskólanemum. Þetta geti létt á umferðinni og dregið úr verðbólgu. Eins sé landið í opinberri eigu og því séu minni líkur á braski með lóðir. Enginn flokkur sé að boða einmitt þetta.
Miðað við kosningasjónvarpið telur hann að Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, hafi staðið sig vel en hún sé þó að daðra við meirihlutamyndun til hægri. Ekki þótti Hauki mikið til frammistöðu Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks, og oddvita Miðflokksins, Ara Edwalds, koma. Hvað varðar Framsókn, með Einar Þorsteinsson í oddvitasæti, þá sé þegar fullreynt að hafa þann flokk í meirihluta. Haukur hafði trú á að Samfylkingin boðaði breytingar með nýjum oddvita en nú sé ljóst að flokkurinn boði bara meira af því sama. Mögulega sé óhjákvæmilegt að á næstu dögum fæðist hægri meirihluti og að það sé eina leiðin til að fella núverandi stefnu borgarinnar sem Hauki hugnast ekki.
„Það kom enginn með flugvallarsvæðið sem leysir þó svo margt í einu. Björg var flottust, en ætlar að mynda hægri meirihluta, Hildur drambsöm og yfirlætisfull í málflutningi og Ari er fulltrúi rasista- og þjóðernisflokks. Með Einar er fullreynt. Kannski er óhjákvæmilegt að myndaður verði hægri meirihluti til að fella núverandi stefnu Borgarinnar – en ég hafði sem sagt gert mér vonir um að Samfylkingin tæki 180° snúning. Það gerði hún ekki. Þá eru Silja Sóley í Sósíalistaflokknum og Björg í Viðreisn kostirnir fyrir mig, hversu mótsagnakennt sem það annars er. Enginn veit hvernig þær munu reynast eða hvort Silja Sóley kemst yfirleitt inn.“