Stærsta skemmtanahelgi ársins er runnin upp og þessa verslunarmannahelgina er úr nógu að velja. Fjölbreytta dagskrá er að finna í öllum landshlutum og flestir ættu að sjá til sólar, þó það gæti orðið heldur dimmara yfir Austur- og Norðurlandi.
Suðvesturhornið:
- Innipúkinn verður í Reykjavík
- Og lokahelgi Hjarta Hafnarfjarðar.
- Einnig eru nokkrir smærri viðburðir á höfuðborgarsvæðinu eins og Brekkusöngur Regínu Óskar og Svenna í Salahverfi í Kópavogi.
Suðurland:
- Eins og venjulega má reikna með fjölmenni á hina sívinsælu Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Og ef rætist úr veðurspánni verður fínasta veður þar um helgina. Þar verða fastir liðir: Stórtónleikar, brekkusöngur, blys, varðeldur og skemmtidagskrá um alla eyju.
- Bæjar- og fjölskylduhátíðin Flúðir um Versló verður um helgina. Á þessari minni hátíð gætu fjölskyldur notið sín vel, á viðburðum eins og furðubátakeppni og að fylgjast með traktoratorfæru.
- Það verður talað táknmál á hverju götuhorni á Selfossi næstu daga, þegar haldin verður Norræn döff menningarhátíð, hátíð heyrnarlausra. Sú hátíð hefur verið í undirbúningi í fjögur ár og verður skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna.
- Kotmót, kristilegt fjölskyldumót Hvítasunnukirkjunnar fer svo fram í Fljótshlíð.
Austurland:
- Norðfirðingar bjóða líka til hátíðar um helgina, þar verður Neistaflug í Neskaupstað. Þar verður ótalmargt í boði, allt frá kassabílarallí, sápubolta og froðupartí fyrir unglinga til stórtónleika og flugeldasýningar.
Norðurland:
- Pönkið ræður ríkjum á Laugarbakka á hátíðinni Norðanpaunk.
- Unglingalandsmót UMFÍ verður á Sauðárkróki í ár. Þar fá börn og ungmenni að njóta sín um helgina í fjölbreyttum keppnisgreinum og skemmtidagskrá.
- Á Akureyri verður mikið um að vera um helgina, á bæjarhátíðinni Einni með öllu. Þar verður hátíðardagskrá á Akureyrarvelli, stórtónleikar, flugeldasýning og ótal smærri viðburðir um allan bæ.
- Hin líflega hátíð Síldarævintýri á Siglufirði verður um helgina. Skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna - þar sem minnst er gömlu góðu síldaráranna.
- Fjölskylduhátíð á Hjalteyri verður við Eyjafjörðinn á laugardag. Smærri hátíð með heimilislegum brag, verbúðarstemmingu, kyndlagöngu og flugeldasýningu.
Vestfirðir:
- Þeir sem sakna mýrarboltans á Ísafirði ættu að skoða dagskránna á hátíðinni Nábrókinni í Trékyllisvík á Ströndum. Þar bjóða sveitungar í mýrarbolta, brekkusöng og alvöru sveitaball.
- Verslunarmannahelginni verður svo fagnað á Bíldudal, með fjölskylduleikum, partýbingó og fleiru.
- Göngugarpar ættu svo ekki að láta sig vanta á Gönguhátíð á Súðavík.
Vesturland:
- Árlegir Sæludagar KFUM og KFUK verða í Vatnaskógi um helgina. Þar verður fjölskyldudagskrá, með kvöldvökum, föndri, varðeldi, skemmtiskokki og fleiru.
Sumir þurfa pollagalla en sól skín á flesta seinnihluta helgarinnar
Veðurspáin gerir ráð fyrir mögulegri úrkomu norðan- og austanlands fyrri hluta helgarinnar en að sólin skíni á landið sunnanvert. Á sunnudaginn á að vera blíðskaparveður um allt land.
Hér er hægt að glöggva sig á veðrinu í hverjum landshluta: