Í síðustu viku var maður handtekinn vegna gruns um að aka undir áhrifum fíkniefna og vörslu á talsverðu magni fíkniefna.
Í dagbók lögreglu kom fram að athugasemd hefði verið gerð við rekstur snyrtistofu sem virtist ekki vera samkvæmt lögum um slíkan rekstur og að það hefði verið afrakstur handtöku mannsins.
„Það kemur í ljós að hann var með snyrtistofu í heimahúsi sem var ekki með rekstrarleyfi. Við erum enn að skoða þetta,“ segir Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi í Kópavogi, innt eftir umræddu máli. Ráðist var í húsleit á heimili mannsins eftir handtökuna. Hann hefur síðan losnað úr haldi.
Sigrún segir að næstu skref séu að taka skýrslu af eiganda snyrtistofunnar, sem er annar en sá sem var handtekinn. Þá verði haft samráð við viðeigandi stofnanir. Lögregla hefur til skoðunar hvort einhver hafi starfað sem snyrtifræðingur án þar til gerðs starfsleyfis.
Sigrún segir aðspurð að ekki sé algengt að snyrtistofur séu í heimahúsum.
Ólíklegt að snyrtistofan tengist hugsanlegri fíkniefnasölu
Málið er að hennar sögn nokkuð yfirgripsmikið og ljóst að rannsókn þess verði tímafrek, enda þurfi að fara yfir fjármál og gögn málsins með þar til gerðum stofnunum, svo sem skattinum og heilbrigðiseftirlitinu.
Sá handtekni var með talsvert magn fíkniefna í fórum sínum og var grunaður um peningaþvætti. Lögregla hefur til skoðunar hvort að um fíkniefnasölu hafi verið að ræða.
Er talið að fíkniefnasalan tengist snyrtistofunni?
„Mér finnst það ólíklegt en það er eitthvað sem við þurfum að skoða,“ segir Sigrún.
Það að reka snyrtistofu án starfsleyfis eða að starfa sem snyrtifræðingur án leyfis telst til brota á iðnaðarlögum.
Að sögn Sigrúnar er umrædd snyrtistofa ekki starfandi núna.