Halla og Björn halda út í dag og taka síðan þátt í hátíðarhöldunum sem eru þann 30. apríl.Að morgni fimmtudagsins sækja forsetahjónin hátíðarmessu í Slottskyrkan og að henni lokinni heldur afmælisdagskráin áfram í konungshöllinni. Borgarráð Stokkhólms býður síðan til hádegisverðar í ráðhúsi borgarinnar. Afmælishátíðinni lýkur síðan í konungshöllinni með hátíðarkvöldverði. Þjóðhöfðingjar allra Norðurlandanna verða viðstaddir hátíðina auk fjölda annarra þjóðarleiðtoga og gesta.Karl Gústaf varð konungur árið 1973 eftir andlát Gústafs sjötta, afa hans, en faðir Karls lést í flugslysi þegar Karl var ungur að aldri. Hann er sá konungur sem hefur lengst setið í því embætti þar í landi. Árið 1976 giftist hann Silvíu og eiga þau saman Viktoríu sem mun taka við krúnunni af föður sínum.Þetta er í annað skipti sem Halla heldur í opinbera heimsókn til Svíþjóðar en hún fór þangað fyrst fyrir tæpu ári síðan.
Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu - Vísir