Á myndskeiði sem tekið var núna í morgun má sjá slökkvilið höfuðborgarsvæðisins draga bílinn upp úr fjörunni. Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu staðfestir í samtali við fréttastofu að slökkviliðið hafi verið að verki eftir að hafa fengið beiðni frá lögreglunni.
Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að þeim hafi borist tilkynning um umferðarslys rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi.
„Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum,“ segir hún.
Ökumaðurinn var einn í bílnum og var hann fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Hjördís segir að hann hafi verið ekki talinn alvarlega slasaður en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um líðan hans.