21 árs maður frá Suður Súdan hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi eftir að hafa mætt vopnaður á skólalóð í Manchester á Englandi með hamar, öxi, eldhúshníf og brúsa af bensíni.
Both Douk Deng var handtekinn við Edgar Wood Academy í Heywood 6. ágúst í fyrra eftir að verkamenn á svæðinu urðu varir við hann og höfðu afskipti af honum.
Fyrir dómi kom fram að Deng hefði gengið heilan hring um skólalóðina með vopnin á sér. Hann var með hamar, litla öxi, um 18 sentímetra langan eldhúshníf og brúsa sem innihélt um hálfan lítra af bensíni.
Skólinn var lokaður vegna sumarleyfis þegar atvikið átti sér stað.
Hafði hegðað sér undarlega við annan skóla
Daginn áður hafði Deng sést við tvo aðra skóla í Rochdale þar sem hann var sagður hafa hegðað sér undarlega.
Þar sparkaði hann í kallkerfi skólans og skemmdi það. Sá skóli var einnig lokaður vegna sumarleyfis.
Verjandi Deng sagði fyrir dómi að hann hefði ekki ætlað sér að særa eða ráðast á neinn og ekkert benti til þess að hann hefði hótað ákveðnum einstaklingi.
Hún sagði athæfi hans vissulega undarlegt og hvatvíst en sagði hann hafa þjáðst af mikilli vanlíðan eftir að hafa yfirgefið Súdan og fjölskyldu sína við erfiðar aðstæður.
„Hann vildi athygli og var í krísu en hann var ekki knúinn áfram af illvilja í garð barna, kennara eða almennings,“ sagði verjandinn.
Sagður hafa orðið sífellt pirraðri
Deng hafði komið til Bretlands sem hælisleitandi og verið komið fyrir í sameiginlegu húsnæði. Fyrir dómi kom fram að hann talaði mjög takmarkaða ensku og hefði upplifað að enginn hlustaði á hann eða aðstoðaði hann.
Verjandi hans sagði Deng hafa orðið sífellt pirraðri yfir því að aðrir í svipaðri stöðu fengju aðstoð frá innflytjendayfirvöldum en að mál hans sjálfs stæði í stað.
„Eina ósk hans er að vinna og afla peninga til að styðja fjölskyldu sína,“ sagði hún.
Geðrannsóknir leiddu ekki í ljós alvarleg geðræn veikindi.
Deng játaði brot vegna meðal annars eignaspjalla og vörslu vopna og hnífs á almannafæri og á skólalóð. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi og mun samkvæmt dóminum afplána helming refsingarinnar í fangelsi en hinn helminginn undir eftirliti.