Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti og áhrifamesti tónlistarmaður Íslandssögunnar, er látinn, 81 árs að aldri.
Krummi Björgvinsson minnist Gunnars með hlýjum orðum á Facebook. Fráfallið sé honum sérstaklega þungbært, enda aðeins skammt liðið frá því að faðir hans, Björgvin Halldórsson, féll frá. Gunnar og Björgvin voru nánir vinir og samstarfsfélagar um áratugaskeið.
„Að heyra af fráfalli Gunnars Þórðarsonar er mér þungbært og sárt, sérstaklega nú þegar aðeins stuttur tími er liðinn frá því að ég kvaddi föður minn, Björgvin Halldórsson,“ skrifar Krummi.

„Einstakur tónlistarsnillingur“
Krummi segir Gunnar hafa verið einstakan tónlistarsnilling. Úr samstarfi hans og Björgvins hafi orðið til mörg ástsælustu og fallegustu lög íslenskrar tónlistarsögu.
Krummi á sjálfur fjölmargar bernskuminningar tengdar Gunnari og eiginkonu hans, Toby Sigrúnu Herman. Sem lítill drengur dvaldi hann oft á heimili þeirra við Ránargötu, þar sem Gunnar rak hljóðver sitt.
„Þar fékk ég oft að fylgjast með honum og pabba við störf. Gunnar var alltaf einstaklega hlýr og góður við mig og kenndi mér ýmislegt sem ég mun ávallt vera þakklátur fyrir,“ skrifar Krummi.
Báðir ánægðir með Vetrarsól
Krummi rifjar einnig upp þegar hann tók upp sína eigin útgáfu af laginu Vetrarsól. Gunnar samdi lagið við texta Ólafs Hauks Símonarsonar en Björgvin Halldórsson söng það og gerði ódauðlegt.
„Ég er stoltur af þeirri útgáfu og það mun alltaf ylja mér að bæði Gunnar og pabbi sögðu mér hversu ánægðir þeir væru með útgáfuna,“ segir Krummi.
Hann lýkur færslunni með því að votta Toby Sigrúnu, börnum Gunnars, fjölskyldu og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur:
„Takk fyrir allt, Gunnar.“

Skildi eftir sig ómetanlegan tónlistarfjársjóð
Gunnar Þórðarson fæddist á Hólmavík 4. janúar 1945 en ólst að stórum hluta upp í Keflavík. Hann vakti ungur athygli með Hljómum og samdi aðeins átján ára gamall lögin Bláu augun þín og Fyrsti kossinn.
Síðar lék hann meðal annars með Trúbroti og Ðe Lónlí Blú Bojs auk þess að starfa með fjölmörgum af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Gunnar var gríðarlega afkastamikill tónhöfundur, útsetjari og upptökustjóri og samdi tónlist fyrir plötur, kvikmyndir, leikhús, kóra og sinfóníuhljómsveitir.
Meðal þekktustu laga hans eru Bláu augun þín, Þú og ég, Gaggó Vest, Vetrarsól og Þitt fyrsta bros. Hann samdi jafnframt óperuna Ragnheiði, sem frumsýnd var árið 2013.
Gunnar lætur eftir sig ómetanlegan tónlistarfjársjóð sem hefur fylgt íslensku þjóðinni kynslóð fram af kynslóð.
Hér fyrir neðan má sjá og heyra Krumma flytja útsetningu sína á lagi Gunnars Þórðarsonar, Vetrarsól.