Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, ætlar ekki að taka sæti þegar ný bæjarstjórn kemur saman 1. júní. Flokkurinn missti töluvert fylgi frá síðustu sveitarstjórnarkosningum og tvö sæti í bæjarstjórn. Árni Rúnar Þorvaldsson bæjarfulltrúi tekur sæti í stað Guðmundar Árna, sem ætlar líka að víkja sem varaformaður Samfylkingarinnar.
„Á kosninganótt tilkynnti ég um það að ég tæki á mig ábyrgð af ósigri flokksins í Hafnarfirði, verandi leiðtogi hans, og undirstrikaði mikilvægi þess að maður bæri og tæki ábyrgð í pólitík,“ segir Guðmundur Árni.
„Það er því eðlilegt framhald að ég segi mig frá bæjarfulltrúasætinu og varamaður mun taka þar sæti í bæjarstjórn þegar ný bæjarstjórn kemur saman 1. júní.“
Það gefi því augaleið að hugsa sinn gang varðandi varaformennsku. Einnig sé heppilegt fyrir formanninn, Kristrúnu Frostadóttur, að fá svigrúm til að velja sér öflugt lið.
„Ég vil hafa skýrar línur í pólitík og koma til dyranna eins og ég er klæddur. Nú er rétti tíminn að stíga af sviðinu og láta öðrum og yngri eftir um framhaldið. En jafnaðarmenn eru langt í frá hættir eða farnir þó að ég stígi til hliðar. Þannig er það nú bara.“
Guðmundur segir að hann sé hvergi nærri hættur að hafa skoðanir og hann verði áfram í baklandi flokksins. Hann fari úr stjórnmálunum með gleði en tilfinningin sé skrítin.
„Ég er langt í frá kalinn á hjarta og geri þetta með, ekki vil ég nú segja bros á vör, en með sannfæringu í huga. Þetta er rétta ákvörðunin og hana tek ég og horfi bjartur fram á veginn.“