Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands, segir að það að hleypa dýrum út úr einu búi leysi ekki neinn vanda.
„Ef um dýravelferðaraðgerð er að ræða í þessu tilviki þá er það bara til að skaða dýrin sem um ræðir, bæði dýrin í umhverfinu og þessi tilteknu dýr og að sjálfsögðu málstað dýravelferðar,“ segir hún.
Björgunarsveitir hafa verið með gæslu í nágrenni við Dalsbú í Mosfellsdal. Þangað hefur fjöldi manns gert sér ferð til að reyna að berja strokuminka augum.
Björgunarsveitarmenn segja við fréttastofu að mikil umferð fólks hafi verið í gærkvöldi. Þeir stöðvuðu meðal annars ungmenni sem ætluðu sér að fanga mink með háfi og eiga sem gæludýr.
Fólki hefur verið beðið um að nálgast minka ekki. Björgunarsveitir verða áfram við gæslu í dag.
Dýralæknafélag Íslands segir að slepping minka af Dalsbúi í gær sé „ekkert annað en alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra og á ekkert skylt við dýravernd eða dýravelferð“.
Félagið lýsir yfir stuðningi við Matvælastofnun, lögreglu og „aðra þá sem nú takast á við þessar krefjandi aðstæður.“
Þóra Jónasdóttir yfirdýralæknir segir að aflífa þurfi strokuminka sem sluppu út fyrir öryggisgirðingar við Dalsbú í Mosfellsdal.
Ekki liggur fyrir hve margir þeir eru en talið er að það sé nokkur fjöldi.
„Þeir geta ekki komið aftur í búið bæði af smitvarnarlegum ástæðum og það er hreinlega búið að rútta öllu fyrirkomulagi í búrunum,“ segir Þóra.