Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, tilkynnti í dag að nemendum í grunnskólum borgarinnar væri bannað að nota gervigreind. Bannið nær til nemenda upp í áttunda bekk, eða þar til þeir hefja göngu í framhaldsskóla. Bannið verður í gildi skólaárið 2026-2027.
Bannið nær til tæplega 600 þúsund nemenda í opinberum skólum í New York-borg. Skólaráð borgarinnar er það langstærsta í landinu.
Nemendur í framhaldsskólum, sem eru almennt 14 ára og eldri, mega hins vegar taka þátt í afmörkuðum tilraunaverkefnum þar sem gervigreind er notuð. Þeim verður einnig boðið upp á námskeið í gervigreindarlæsi tvisvar á ári.
Svokölluð fylgispjallmenni (e. companion chatbots), sem eru sérstaklega hönnuð til að veita notendum tilfinningalegan stuðning, verða bönnuð á öllum skólastigum.
Börn þurfi að takast á við krefjandi verkefni upp á eigin spýtur
Mamdani segir tæknigeirann vilja sannfæra almenning um að gervigreind í menntun barna sé bæði óumflýjanleg og nauðsynleg. Hann sé ósammála því.
„Börn þurfa kennara og mannleg tengsl til að læra og þroskast,“ sagði Mamdani og bætti við að börn þyrftu einnig að takast á við krefjandi verkefni upp á eigin spýtur.
Kennarar mega áfram nota gervigreind við undirbúning kennslu og ýmis stjórnunarstörf. Á næsta skólaári mun starfshópur nemenda, kennara, foreldra, kjörinna fulltrúa og sérfræðinga einnig meta áhrif reglnanna áður en niðurstöður verða birtar.