Lögregla var kölluð til 17. júlí eftir að konan leitaði sér aðstoðar á bráðamótttöku. Maðurinn fylgdi konunni á bráðamótttöku og var handtekinn eftir að starfsmenn gerðu lögreglu viðvart. Konan kvaðst í fyrstu hafa veitt sér áverkana sjálf með því að brjóta mjólkurglas á höfði sér.
Samkvæmt bráðabirgðavottorði vaknaði aftur á móti strax sterkur grunur um að hún hafi orðið fyrir líkamsárás með vopni. Læknir mat áverka hennar lífshættulega. Konan hlaut höfuðkúpubrot, kjálkabrot og brot á andlitsbeinum.
Vissi ekki hvort höggin hefðu verið veitt með hendi eða áhaldi
Í skýrslutöku á slysadeild sagðist konan hafa rifist við kærasta sinn fyrr um daginn og hann farið til vinar síns í kjölfarið. Hann hafi fyrst komið heim um tvöleytið um nótina. Hann hafi þá veist að henni með ofbeldi.
Hann hafi verið með hamar og exi en hún vissi ekki hvort hann notaði hendi eða áhald til að veita henni höggin. Frændi hennar hafi skutlað þeim á slysadeild. Frændi konunnar sagði lögreglu konuna hafa tjáð sér að kærastinn hafi beitt hana ofbeldi.
Lögregla gerði húsleit á heimili parsins og fann þar blóðuga exi, kúbein og kaðal með ætluðu blóði á.
Hending ein að ekki hafi farið verr
Maðurinn neitaði að mestu að tjá sig við lögreglu en sagði samband sitt við konuna hafa verið gott. Hann hafi ekki verið á heimilinu frá tvö um dag til tvö um nóttina.
Maðurinn var handtekinn samdægurs og hefur verið í haldi lögreglu síðan. Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. september.
Í greinagerð lögreglu segir að atlagan hafi verið stórháskaleg og hending ein að ekki hafi farið verr.