Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa - Vísir
Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa - Vísir
📅 2026-04-21 15:30:08👁️ 3 lesið
Þetta má lesa úr tveimur nýjum skýrslum sem Veðurstofan birti í dag. Önnur ber heitið Hraunvá á Reykjanesskaga en hin Hraunvá á höfuðborgarsvæðinu.
Þær eru liður í langtímaáhættumati vegna jarðskjálfta, eldgosa og annarrar jarðvár á Reykjanesskaga sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið fól Veðurstofunni að vinna í ársbyrjun 2024 í kjölfar aukinnar virkni á svæðinu. Hættumatið nær frá Reykjanestá í vestri að Ölfusá í austri og Hvalfirði í norðri.Mestar líkur á gosupptökum á Reykjanesskaga eru á svæðum með fjólubláum og bláum lit. Litir tákna mismiklar líkur, frá gráu upp í fjólublátt.Veðurstofan
Í inngangi segir að núna þegar nýtt gosskeið sé hafið á Reykjanesskaga, eftir áttahundruð ára goshlé, blasi nýr veruleiki við íbúum Reykjanesskaga. Auknar líkur séu á að eldgos, hraunflæði og aðrar afleiðingar kvikuhreyfinga geti valdið usla á skaganum á næstu áratugum. Því sé mikilvægt að vinna langtímahættu- og áhættumat vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga.Eldgosavá á Reykjanesskaga hefur birst landsmönnum með skýrum hætti undanfarin ár. Hér er hraun frá eldgosi við Sundhnjúka að eyðileggja húsbyggingu og bílastæði við Bláa Lónið í nóvember 2024.Vilhelm
Veðurstofan bendir á að niðurstöðum sé ekki ætlað að segja ekki til um hvar og hvenær næsta eldgos verður og hvort hraun renni á tilteknu svæði á næstu árum. Þær svari því heldur ekki hvað telst vera „ásættanleg áhætta“ hvað varðar búsetu eða starfsemi á svæðinu.Dökkblár og fjólublár litur tákna mestar líkur á hraunflæði á Reykjanesskaga fyrir eina sviðsmyndina sem kallast Flæði – meðalstór hraun. Á myndinni má sjá lífæðar samfélaga á svæðinu, það er helstu raflínur, vatnslagnir fyrir heitt og kalt vatn og vegi.Veðurstofan Slíkar upplýsingar gagnist þó við framtíðarskipulag, mynda undirstöðu fyrir góða landnýtingu og styrkingu innviða. Auk þess gagnist niðurstöður til að skilgreina mótvægisaðgerðir og auðvelda viðbragð ef til þess kemur að ómissandi eða mikilvægir innviðir verði fyrir tjóni.
Þrír bæir í mestri hættu
Þegar eldgosavá gagnvart byggð er metin skera þrír bæir sig úr; Grindavík, Hveragerði og hluti Hafnarfjarðar. Þá liggja bæjarmörk Garðabæjar nærri svæði þar sem líkur eru taldar á gosupptökum.Grindavík er eini þéttbýlisstaðurinn á Reykjanesskaga sem er á svæði með bæði mjög miklar líkur á gosopnun og mikla hættu á hraunflæði. Hér má sjá gossprungu og hrauná norðan Grindavíkur í marsmánuði 2024.Vilhelm „Grindavík er útsett fyrir mjög mikilli hættu á hraunflæði og mjög miklum líkum á gosopnun, en Hveragerði er útsett fyrir mjög mikilli hættu á hraunflæði. Hlutar Hafnarfjarðar eru um einn kílómetra frá svæðum þar sem líkur á hraunflæði eru mjög miklar,“ segir í skýrslu Veðurstofunnar.Grindavík er staðsett á svæði þar sem líkur á gosupptökum eru metnar miklar. Grindavík er jafnframt það þéttbýli sem liggur næst líklegum gosupptökum á Reykjanesskaga.Þrjú bæjarfélög, Grindavík, Hveragerði og hluti Hafnarfjarðar, standa á svæðum þar sem líkur á hraunflæði eru taldar miklar. Kortið sýnir sviðsmynd sem kallast Flæði – meðalstór hraun.Veðurstofan
Á Suðurnesjum sýna hraunhermanir að hraun geta einnig runnið til Hafna, Innri-Njarðvíkur, Voga og Vatnsleysustrandar, þótt líkurnar á hraunflæði á þeim stöðum séu aðeins metnar litlar til nokkrar.Líkur á hraunflæði frá eldstöðvakerfi Reykjaness/Svartsengis. Bláar örvar sýna helstu hraunrennslisleiðir á svæðinu.Veðurstofan Bæjarmörk Hafnarfjarðar eru tæplega þrjá kílómetra frá svæðum þar sem líkur á gosupptökum eru taldar töluverðar og bæjarmörk Garðabæjar eru í um 3,5 kílómetra fjarlægð frá svæðum þar sem metnar eru töluverðar gosupptakalíkur, segja skýrsluhöfundar.„Hveragerði, líkt og Grindavík, er útsett fyrir hraunflæði en líkurnar eru metnar töluverðar til miklar eftir því hvaða sviðsmynd er skoðuð. Eldstöðvakerfin sem geta veitt hrauni á Hveragerði eru Hengill og Hrómundartindur.“Séð yfir Hveragerði í átt til Kamba.Vilhelm Þá er suðvesturhluti Hafnarfjarðarbæjar á svæði með töluverðar til miklar líkur á hraunflæði við ákveðna sviðsmynd sem gerir ráð fyrir meðalstóru hrauni sem flæði langt.Höfuðborgarsvæðinu er talin stafa mest ógn af eldstöðvakerfum Krýsuvíkur og Brennisteinsfjalla. Bent er á að hraun með upptök innan beggja eldstöðvakerfa hafi runnið inn á núverandi byggð svæði höfuðborgarsvæðisins eftir landnám og í nútíma í jarðsögunni.
Höfuðborgarsvæðið að mestu talið í lítilli hættu
„Á stærstum hluta höfuðborgarsvæðisins eru líkur á gosupptökum metnar mjög litlar en líkurnar aukast til suðausturs í átt að eldstöðvakerfum Krýsuvíkur og Brennisteinsfjalla. Í suðausturhluta Hafnarfjarðar eru svæði þar sem líkur á gosupptökum eru metnar töluverðar til miklar og eins er lítið svæði innan marka Garðabæjar þar sem líkur á gosupptökum eru metnar töluverðar.“
Þá eru líkur á hraunflæði metnar mjög litlar til litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins en líkurnar sagðar aukast til suðausturs eins og líkur á gosupptökum. Fimm líklegar hraunrennslisleiðir í átt til Reykjavíkursvæðisins.Veðurstofan
Fimm megin hraunrennslisleiðir að byggð höfuðborgarsvæðisins eru taldar upp þessar:1. Meðfram Krýsuvíkurvegi inn á Vellina og að Straumsvík í Hafnarfirði.2. Meðfram Kaldárselsvegi/Lækjarbotnum í átt að Hafnarfjarðarhöfn og Urriðakotsvatni.3. Meðfram Bruna, Vífilsstaðahrauni og Garðahrauni í átt að Garðabæ.4. Um Heiðmörk að Elliðavatni og niður Elliðaárdal.5. Meðfram þjóðvegi frá Hengli að Elliðavatni og þaðan niður Elliðaárdal.Horft yfir Vellina í Hafnarfirði.Vilhelm „Af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er Hafnarfjarðarbær berskjaldaðastur fyrir hraunflæði. Ástæðan er nálægð við svæði innan eldstöðvakerfis Krýsuvíkur þar sem miklar líkur eru á gosupptökum og hraunflæði, en sveitarfélagið er einnig útsett fyrir hraunflæði frá Brennisteinsfjöllum þó það eigi að mestu við um óbyggt svæði.“Líkur á hraunflæði eru í einni sviðsmynd metnar töluverðar á hlutum af Völlunum, iðnaðarsvæði í Kapelluhrauni og í byggð nálægt Lækjarbotnum. Jafnframt er vísað til jarðsögunnar en hún sýni glögglega að hraun bæði frá Krýsuvíkurkerfinu, það er Kapelluhraun, Óbrinnishólahraun, Selhraun og Geldingahraun; og frá Brennisteinsfjallakerfinu, það er Hellnahraun og Skúlatúnshraun; hafi runnið um svæði þar sem byggð er núna í Hafnarfirði.Horft yfir í Urriðaholtshverfi í Garðabæ í átt til Heiðmerkur. Hrauntröðin Búrfellsgjá er í fjögurra kílómetra fjarlægð.Vilhelm Gunnarsson Þótt líkur séu taldar á gossopnun í jaðri Garðabæjar er bent á að stærsti hluti byggðar í Garðabæ sé staðsettur á svæðum þar sem líkur á hraunflæði eru metnar mjög litlar til litlar.Stærsti hluti byggðar innan Reykjavíkur er sagður með litlum til mjög litlum líkum á hraunflæði. Þó eru líkur á hraunflæði metnar nokkrar á byggð svæði í kringum Norðlingaholt, Breiðholtsbraut og svæði meðfram Elliðaám, þar á meðal hlutar Víðidals og svæði nálægt Árbæjarstíflu.Hraun sem runnið hafa inn á höfuðborgarsvæðið á mismunandi tímaskeiðum eftir ísöld.Veðurstofan Þótt jarðsagan sýni að mörg hraun hafi runnið um landsvæði suðurhluta Reykjavíkurborgar er bent á að langflest þeirra stöðvuðust í Heiðmörk. Leitahraun sé þó öðruvísi. Það rann um þrjátíu kílómetra en það sé óvanalega langt. Upptök hraunsins eru austan Bláfjalla og Vífilsfells, innan eldstöðvakerfis Brennisteinsfjalla, og það stöðvaðist í Elliðaárvogi þar sem nú er Geirsnef.Horft niður Víðidal og Elliðaárdal í Reykjavík.Vilhelm
„Líkur á hraunflæði er metnar litlar í neðanverðum Elliðaárdal þar sem Leitahraun rann fyrir 5.200 árum,“ segir í skýrslunni um höfuðborgarsvæðið.
Fjórar jarðvarmavirkjanir innan eldstöðvakerfa
Þegar kemur að virkjunum og tengdum innviðum er því lýst að þær fjórar jarðvarmavirkjanir, sem nýta jarðhita frá háhitasvæðum Reykjanesskaga til raforku- og varmaframleiðslu, eru allar staðsettar innan eldstöðvakerfa Reykjaness, Svartsengis og Hengils. Virkjanirnar fjórar: á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru allar staðsettar á svæðum á efsta hættustigi. Veitukerfi, svo sem raflínur og hitaveitulagnir, sem tengjast virkjununum, liggja einnig um þessi svæði.„Þar af leiðandi er ljóst að ef eldstöðvakerfin virkjast og eldgos hefjast, eru virkjanir og tengdir innviðir innan viðkomandi eldstöðvakerfis útsett fyrir mikilli vá. Þetta hefur ítrekað sýnt sig fyrir eldstöðvakerfi Svartsengis í yfirstandandi atburðum á Sundhnúks gígaröðinni.“Séð yfir orkuverið í Svartsengi í átt að eldgosi við Sundhnjúka.Vilhelm Aðrar raflínur, Sogslína 2, Sogslína 3 og Búrfellslína 3, liggja yfir eldstöðvakerfi Hengils og Hrómundartindar og eru í hættu ef umbrot verða innan þessara eldstöðvakerfa. Búrfellslína 3 liggur einnig yfir eldstöðvakerfi Krýsuvíkur.
Þjóðvegir liggja um hættusvæði
Margir vegir eru á svæðum á efsta hættustigi, annaðhvort vegna gosupptaka eða hraunflæðis. Þannig liggur Suðurlandsvegur milli Reykjavíkur og Ölfuss á nokkrum stöðum yfir svæði á miklum hættusvæðum ef umbrot hefjast í eldstöðvakerfum Hengils eða Brennisteinsfjalla.Á Grindavíkurvegi í marsmánuði 2024. Landsmenn hafa ítrekað orðið vitni að því í jarðeldunum á Reykjanesskaga undanfarin ár að hraun rynni yfir vegi.Eldgos Yfir sextíu kílómetrar af Suðurstrandarvegi eru á svæðum með hæstu flokkun hraunavár. Suðurstrandarvegi gæti verið ógnað af hraunum frá eldstöðvakerfum Brennisteinsfjalla, Krýsuvíkur og Svartsengi.Stórir kaflar Grindavíkurvegar eru innan svæða með mjög mikla hættu vegna staðsetningar hans innan eldstöðvakerfis Svartsengis eins og hefur þegar sýnt sig í yfirstandandi umbrotahrinu í Svartsengi.Stuttir kaflar Þorlákshafnarvegar eru á hættusvæðum nálægt Hveragerði, Nesjavallaleið er í hættu og sömuleiðis Bláfjallavegur. Þrengslavegur er berskjaldaður á svæði milli Litla-Meitils og Sandfells.Horft í átt til Grindavíkur eftir að hraun hafði runnið yfir stóra kafla Grindavíkurvegar. Ætíð hefur tekist að opna fljótlega nýja leið yfir hraunið.Vilhelm Ein höfn er staðsett á svæði á efsta hættustigi, Grindavíkurhöfn, hún er berskjölduð fyrir hraunavá, segir skýrslan.Tvö vatnsból neysluvatns, Kaldárbotnar í Hafnarfirði og Selhæðir í Hveragerði, eru staðsett á efsta hættustigi. Við Gvendarbrunna, vatnsból Reykjavíkur, eru líkur á hraunflæði metnar litlar samkvæmt öllum sviðsmyndum.
Ekki reynt að meta hvar næst gýs eða hvenær
Skýrslunar tvær sem komu út í dag eru hluti af skýrslum sem unnar eru á Veðurstofunni í tengslum við heildstætt langtímahættu- og áhættumat vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Verkefninu er lýst sem umfangsmiklu. Meginmarkmið þess er sagt að draga úr tjóni með áherslu á innviði. Það sé unnið í skrefum og stefnt að því að ljúka því á næsta ári.Varnargarðar sem reistir voru umhverfis Grindavík hafa til þessa náð að vernda meginhluta byggðarinnar gagnvart hraunrennsli.Vilhelm Veðurstofan tekur fram að ekki sé verið að fullyrða að þær sviðsmyndir sem nefndar eru komi til með að raungerast í framtíðinni. Vegna mikillar óvissu í endurkomutíma eldgosa á Reykjanesskaganum sé ekki unnið með tölulegt mat á líkum á hraunflæði eða gosupptökum innan tiltekins tímabils.
A 62-year-old motorcyclist has died after losing control of his bike and leaving the road on the TF-1 motorway in Costa Adeje, south Tenerife, earlier...
Þetta segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Vindurinn geti reynst varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Vindkort fyrir kl. 2...
Það er þrenging frá því sem áður var að öll áform um vindmyllur yfir 30 metra hæð þurfi að fara gegnum rammaáætlun, segir forstjóri Samorku. Það liggi...
Tveir eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á húsþak á einbýlishúsi í Þýskalandi klukkan 11 í morgun. Þeir voru báðir farþegar í vélinni.Slysið va...
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara Bono fannst laus í hverfinuHvetur hundaeigendur til fyllstu varkárni eftir alvarlegt atvik í gær Mynd:...
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyrir réttum 400 árum keyptu niðurlenskir kaupmenn sér eyju. Þau kaup áttu eftir að draga dilk á eftir s...
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæmundsen segir sveitalífið hafa mótað sig mest. Þar hafi einfaldleiki lífsins orðið til þess...
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...