Skýra þarf stefnu og lagaumgjörð varðandi einkarekið nám á mörkum framhalds- og háskólastigs því óvissa ríkir um stöðu þeirra. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps sem skipaður var af forsætisráðherra í vetur. Hann hefur lagt fram fjórar tillögur um skýrari stefnu og lagaumgjörð.
Hópurinn leggur til að lög um framhaldsskóla verði endurskoðuð með áherslu á að skýra tengsl viðurkenningar, samninga og fjármögnunar, fyrirsjáanleiki verði tryggður og afmörkun náms á mörkum skólastiga gerð skýrari svo stuðla megi að samfellu náms milli skólastiga.
Þá er einnig lagt til að mótuð verði heildstæð stefna um listnám á framhaldsskólastigi og á mörkum skólastiga og að tryggð verði skýrari umgjörð um flugnám og nám í flugtengdum greinum.
Ríkisstjórnin ræddi tillögurnar á fundi sínum á föstudag og samþykkti að fela tilheyrandi ráðuneytum að vinna áfram með útfærslu þeirra og eftirfylgni.