JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir að bandarísk og írönsk stjórnvöld séu nálægt því að komast að samkomulagi um að framlengja vopnahlé þeirra í Mið-Austurlöndum. Hvort niðurstaða náist fari þó eftir því hvort Donald Trump Bandaríkjaforseti veiti samþykki sitt.
Trump hefur ekkert tjáð sig um málið það sem af er degi, þrátt fyrir að bandarískir heimildarmenn hafi sagt AFP-fréttastofunni að samningurinn taki gildi um leið og Trump gefi grænt ljós.
„Það er erfitt að segja nákvæmlega til um hvenær eða hvort forsetinn skrifar undir samninginn,” sagði Vance í gær. „Við höfum farið fram og til baka varðandi nokkur atriði. Það hefur verið góður gangur í viðræðunum.”
Bjartsýni í tengslum við mögulegan samning varð til þess að hlutabréfamarkaðir í Asíu hækkuðu í dag, á meðan olíuverð lækkaði lítillega.
