Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að boðaðar gjaldskrárhækkanir ríkisins gætu orðið minni en áður hafði verið tilkynnt, gangi þríhliða viðræður við aðila vinnumarkaðarins vel.
Krónutöluhækkanir ríkisins fylgja rúmlega 5 prósent verðbólgu en ekki verðbólgumarkmiðum sem eru 2,5 prósent. Hækkanirnar hafa hlotið talsverða gagnrýni, einkum frá aðilum vinnumarkaðarins.
Kristrún var gestur Páls Magnússonar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar sagði hún krónutöluhækkanir ríkisins hafa verið meðal þess sem hefði verið rætt í þríhliða viðræðum vinnumarkaðarins í sumar. Þau samtöl væru uppbyggilegri en oft virtist út á við.
Kristrún segir ákvörðun hafa verið tekna í þeim viðræðum um að bíða fram á haust með að sammælast um aðgerðir. Þau væru því enn í ákveðnum viðræðum um viðmið gjaldskrárhækkana. Hún kvaðst þó ekkert gefa þó ekkert upp um hvort hún myndi taka slíkum tilboðum.
Tilgangurinn ekki að hörfa til baka
Í viðtalinu ræddi Kristrún einnig aðildarumsókn Íslands að ESB. Hún sagði ríkisstjórnina hafa rætt hvort draga ætti hana alfarið til baka.
Sú ákvörðun hefði verið tekin að breyta engu frá því fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það hefði ekki verið tilgangurinn að hörfa til baka, heldur að spyrja hvort Ísland vildi ganga lengra og þar við sæti.