Getur ekkert full­yrt um mögu­legar undan­þágur - Vísir

Getur ekkert full­yrt um mögu­legar undan­þágur - Vísir

Getur ekkert full­yrt um mögu­legar undan­þágur - Vísir

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mætti í Bítið á Bylgjunni þar sem til umræðu voru meðal annars Evrópusambandið og staða efnahagsmála á Íslandi. Til stendur að halda þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst til að ákveða hvort fara eigi í aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Kristrún sagði fyrr í sumar að það hafi verið með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslnanna. Þorgerður hefur helst setið fyrir svörum um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu undanfarnar vikur en Kristrún mætti þó í hlaðvarpið The Rest is Politics.

„Það er ánægjulegt fyrir Ísland að ná að lyfta landinu í svona hlaðvarpi,“ segir hún.

„Svo er þjóðin búin að vera í fríi í júlí og mér finnst ekkert óeðlilegt að fólk fái smá tíma til að melta þetta með sjálfum sér,“ segir hún. „Ég hef ákveðið að fara þá leið þegar kemur að svona málum og sagði það frá upphafi að þetta er þjóðarinnar að ákveða.“

Hennar afstaða hafi alltaf verið skýr og hafi hún þegar svarað fjölda fyrirspurna á Alþingi um málið. Þrátt fyrir að ríkisstjórnin sé fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslunni og stjórnarandstaðan tali gegn hennni telur Kristrún að skoðun fólks á mögulegri aðild ætti ekki að vera bundin við flokkspólitík.

„Þetta er ekki hægri eða vinstri mál.“

Aðstæður breyttust á tveimur árum

Þáttastjórnendur Bítisins, Sigmar Vilhjálmsson og Heimir Karlsson, rifja upp orð Kristrúnar fyrir þingkosningarnar 2024 þar sem hún sagði Evrópumálin ekki vera forgangsmál.

„Eins og staðan var fyrir tveimur árum síðan, rétt fyrir kosningar, þá fannst mér jarðvegurinn ekki þess eðlis og ekki tími til að spyrja,“ svarar Kristrún.

Aðstæður í heiminum hafi hins vegar breyst og töluvert af málum komið upp sem hún bjóst ekki við að þurfa að eiga við sem forsætisráðherra. Nefnir hún viðskiptastríð, tollastríð og einhliða álag tolla. 

„Punkturinn minn er þessi, aðstæður hafa líka breyst. Ég sagði alltaf að við myndum sæta færis,“ segir Kristrún og bætir við að hún telji Ísland í mjög góðri samningsstöðu á þessari stundu. Þjóðin eigi að líta stórt á sig, líkt og þegar samið var um inngöngu í Atlantshafsbandalagið.

„Ekkert land í sömu stöðu hefur sótt um aðild og gengið alla leið. Við erum að gera þetta á tíma sem Evrópusambandið er að leita til norðurs og vesturs.“

Þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið hluti af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og alltaf stóð til að halda hana fyrir árið 2027. Ekki sé um eitthvað sérstakt forgangsmál að ræða og þylur hún upp fjölda mála sem ríkisstjórnin hefur farið í, svo sem fjölgun hjúkrunarheimila, samgönguáætlun og veiðigjöld.

51 prósent sé nóg

„Ég er ekki viss um að fólk tengi þetta mál ofboðslega mikið við skoðanir á ríkisstjórninni,“ segir Kristrún.

Hún telur að fólk átti sig á því að möguleg aðild sé pólitískt mál en skoðun þess á Evrópusambandinu ætti ekki að vera bundin við ákveðna flokka. Alls konar mismunandi flokkar séu á Evrópuþinginu, bæði þeir sem horfa til hægri og vinstri.

Það verði ekki endalok Viðreisnar, sem hefur haft ESB-málin í forgangi, þótt niðurstaðan verði neikvæð. Hún bendir á að fylgi Viðreisnar sé mikið.

„Við verðum að geta treyst okkur á Íslandi til að taka mál eins og þetta sem eru í grunninn pólitísk en þurfa ekki að vera flokkspólitísk.“

Kristrún fullyrðir að sama hver niðurstaða kosninganna, sem haldnar verða 29. ágúst, verður verði niðurstaða hennar virt.

Er 51 prósent nóg [til að fara ekki í aðildarviðræður]?

„Þannig virkar þjóðaratkvæðagreiðsla og meirihluti. Ég myndi gjarnan vilja fá meira afgerandi svar,“ segir Kristrún. „Einhvers staðar verðum við að draga línuna.“

„Ef þjóðin segir nei eru það skýr skilaboð.“

Hins vegar ef þjóðin segir já muni aðildarviðræður hefjast á nýjan leik en ítrekar Kristrún að fullgerður samningur verði lagður fyrir þjóðina og hún muni fá að greiða aftur atkvæði um hann.

Ísland yrði stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins

Mögulegar undanþágur frá reglum Evrópusambandsins, sér í lagi þegar horft er til sjávarútvegsins, hafa mikið verið í umræðunni. 

Kristrún segist ekki geta fullyrt að Ísland fái slíkar undanþágur en bendir á að ef Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið stærsta einstaka fiskveiðiþjóð sambandsins. Mikilvægt sé að tryggja þjóðinni yfirráð yfir hennar eigin auðlindum þar sem lykilatriðið sé að fjármagnið sem kemur úr kvótanum haldist hér á landi og sömuleiðis störfin.

„Sjávarútvegur skiptir okkur hlutfallslega miklu meira máli en langflest ríki sambandsins,“ segir hún.

„Auðvitað verður það útgangspunktur þessara samningsviðræðna og mér finnst það mjög raunhæfur punktur að eitthvað sem við höfum ein veitt í áratugi þurfi ekki að vera hluti af þessari sameiginlegu stefnu.“

„Við eigum að vera svolítið ánægð með okkur og fara inn og sækja sterkan samning.“

Áætlaður kostnaður um tveir milljarðar

Aðspurð um hvað mögulegar aðildarviðræður geti kostað vísar Kristrún í svar utanríkisráðuneytisins sem gerir ráð fyrir að kostnaðurinn verði tæpir tveir milljarðar. Það kosti álíka mikið og leiðtogafundur Evrópuráðs sem haldinn var í Hörpu árið 2023.

„Erlend hagsmunagæsla kostar peninga og hún skilar árangri sem er oft óséður en hefur áhrif,“ segir Kristrún og nefnir að Ísland fái aukin viðskiptasambönd og lánalínur.

Tveir milljarðar séu lítil tala í stóra samhenginu miðað við þá kosti sem landið geti fengið. Með góðum samningi er verið að opna leið fyrir Ísland inn í tollasamband Evrópu og sömuleiðis fríverslunarsamninga.

„Allt sem skiptir máli og hefur raunveruleg áhrif tekur súrefni úr kerfinu,“ segir hún. „Ísland stendur vel, við erum vel undirbúin.“

Sleggjan hafi skilað sínu

Kristrún fór einnig yfir efnahagsmál á Íslandi í dag þar sem hún segir sleggjuna hafa skilað sínu í að halda verðbólgu og vöxtum niðri.

„Ég myndi vilja sjá lægri vexti og lægri verðbólgu. Staðreyndin er sú að verðbólgan var í kringum níu til tíu prósent á síðasta kjörtímabili. Hún er í kringum fimm prósent núna,“ segir hún.

Olíuverðshækkanir og kjarasamningsbundnar hækkanir hafi spilað inn í en Kristrún telur að hækkanir líkt og kílómetragjaldið hafi ekki haft töluverð áhrif.

„Ég veit alveg að við fórum út í hækkanir en ég veit líka hvernig þær líta út í samhenginu,“ segir hún.

„Það er ekki rétt að hér hafi verið stórkostleg breyting í skatttekjum.“

Tekjur sem hlutfall af landsframleiðslu hafi ekki hækkað á tímabili ríkisstjórnar hennar og liggi fyrir að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafi gert áætlanir um aukin útgjöld sem búið hafi verið að ráðstafa beint af tekjum hærra kílómetragjalds. Þau hafi hins vegar hætt við og þess í stað rekið ríkið með halla.

„Mér finnst ekki erfitt að fara úr olíugjaldi sem við fellum niður í kílómetragjald. Það er búið að breyta eðli kerfisins, það þurfti að klára þetta mál og við gerðum það,“ segir Kristrún.

„Staðreynd málsins er sú að það getur enginn sagt að við séum ekki að ráðast í erfiðar ákvarðanir.“

#ekkert #fullyrt #getur #mögulegar #undanþágur


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262917673d/getur-ekkert-fullyrt-um-mogulegar-undanthagur

📰 Aðrar fréttir

Sögulegur samningur undirritaður - Sérstök áhersla á sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga en Bandaríkin fá víðtækar heimildir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Sögulegur samningur undirritaður - Sérstök áhersla á sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga en Bandaríkin fá víðtækar heimildir
Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens Frederik Nielsen formaður grænlensku landstjórnarinnar hafa nú un...
Spyr hvern verkfallið eigi að bíta og stingur upp á nýrri útfærslu
📅 22.09.2026 👁️ 1
Spyr hvern verkfallið eigi að bíta og stingur upp á nýrri útfærslu
Gunnar Ármannsson lögmaður spyr hvern yfirvofandi verkfall flugvirkja hjá Icelandair eigi að bíta og segir það munu bitna helst á aðilum sem ekki geta...
Spyrnur ungmenna reglulega tilkynntar til lögreglu
📅 22.09.2026 👁️ 1
Spyrnur ungmenna reglulega tilkynntar til lögreglu
Hörður Lilliendahl, varðstjóri í umferðadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu gera sitt besta til að sporna við hraðaakstri. Ungt fó...
„Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
„Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ - Vísir
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni en tilefnið eru orð Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra á blaðamannafundi ...
Gómaður með gríðar­legt magn af barna­klámi - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Gómaður með gríðar­legt magn af barna­klámi - Vísir
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í júlí en var fyrst birtur síðdegis í dag. Lögreglan ákærði manninn fyrir kynferðisbrot með því að hafa í októb...
Bróðir Díönu varpar fleiri sprengjum um konungsfjölskylduna - „Þetta er orðrétt eftir honum haft“
📅 22.09.2026 👁️ 2
Bróðir Díönu varpar fleiri sprengjum um konungsfjölskylduna - „Þetta er orðrétt eftir honum haft“
Væntanleg bók jarlsins Charles Edward Maurice Spencers er ekki enn komin í hillur bókabúðanna en hefur þegar vakið gríðarlega athygli en þar fjallar h...
Hinsegin konu synjað um alþjóðlega vernd en fær samt að vera áfram á landinu
📅 22.09.2026 👁️ 2
Hinsegin konu synjað um alþjóðlega vernd en fær samt að vera áfram á landinu
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja konu frá Afríkuríki og barni hennar um alþjóðlega vernd. Hafði konan ...
Forsendur fyrir skólahaldi og fasteignakaupum í Grindavík
📅 22.09.2026 👁️ 1
Forsendur fyrir skólahaldi og fasteignakaupum í Grindavík
Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats fyrir Grindavík hafa verið birtar. Miðað við þær eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásæ...
Trump kallar eftir því að ríki segi skilið við Alþjóðlega sakamáladómstólinn
📅 22.09.2026 👁️ 1
Trump kallar eftir því að ríki segi skilið við Alþjóðlega sakamáladómstólinn
Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór um víðan völl í ræðu sinni á fundi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Meðal umræðuefna hans va...
Bókun 35 komin fram á þingi
📅 22.09.2026 👁️ 1
Bókun 35 komin fram á þingi
Frumvarp um bókun 35 hefur enn og aftur verið lagt fram á Alþingi. Ríkisstjórnin er staðráðin í að klára málið í þetta sinn en frumvarpið var fyrst la...
Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka - Vísir
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands segir að ríkisstjórnin hafi í dag fjallað um niðurstöður þess hluta endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík s...
Flestir fé­lagar vilji frekari kjara­bætur vegna forsendubrests - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Flestir fé­lagar vilji frekari kjara­bætur vegna forsendubrests - Vísir
Ný kjarakönnun hjá félagsfólki Fagfélaganna, sem samanstendur af RSÍ, VM og MATVÍS, sýnir að sjötíu prósent svarenda hafi ekki fengið kjarabætur umfra...
Inga Sæland: Símabannið breytir öllu – börnin verða ánægðari og læra betur
📅 22.09.2026 👁️ 1
Inga Sæland: Símabannið breytir öllu – börnin verða ánægðari og læra betur
Í Finnlandi breytti símabann í skólum öllu á mettíma. Börnin eru glaðari og námsárangur betri. Það er mikið að gerast í menntamálunum á vakt Ingu Sæla...
Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð
📅 22.09.2026 👁️ 1
Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ummæli Guðmundar Inga Kristjánssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, í síðust...
Plot targeting Manchester's Jewish community disrupted, say police
📅 22.09.2026 👁️ 1
Plot targeting Manchester's Jewish community disrupted, say police
Two men were arrested over a suspected terrorist plot to target the Jewish community, police say.
Plot targeting Manchester Jewish community disrupted, say police
📅 22.09.2026 👁️ 1
Plot targeting Manchester Jewish community disrupted, say police
Two men were arrested in Manchester on Sunday, say counter-terror police.
Kristján hótar lög­sókn verði bann að lögum - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Kristján hótar lög­sókn verði bann að lögum - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali AFP fréttaveitunnar við Kristján, sem ekki hefur gefið Vísi kost á viðtali síðustu vikur. Hanna Katrín Fr...
Ed Davey promises tax cuts for millions if UK rejoins EU single market
📅 22.09.2026 👁️ 2
Ed Davey promises tax cuts for millions if UK rejoins EU single market
The Lib Dem leader vows to raise tax thresholds if he becomes PM, in a speech to his party conference.
Halda and­stæðingum fjarri Græn­landi með sam­komu­lagi - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Halda and­stæðingum fjarri Græn­landi með sam­komu­lagi - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Fredrik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, staðfestu samkomul...
Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind - Vísir
Þess er getið í helstu erlendum miðlum að forsetinn hafi haldið sig við marga kunnuglega talpunkta í ræðunni. Hann ítrekaði meðal annars rétt landa ti...
Mælistikan á lofti
📅 22.09.2026 👁️ 1
Mælistikan á lofti
Mælistikan á lofti Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Nýtt eld­hús eft­ir máli eft­ir Frið­geir Ein­ars­son, sem sýnt er í Kass­an­um í Þjóð­leik­hús...
Earl Spencer apologises to Piers Morgan over error in book
📅 22.09.2026 👁️ 2
Earl Spencer apologises to Piers Morgan over error in book
The BBC understands the book's publisher, Penguin, will be amending the inaccuracy in future editions of the book.
Spencer's book should be pulled from shelves, Piers Morgan says
📅 22.09.2026 👁️ 1
Spencer's book should be pulled from shelves, Piers Morgan says
The BBC understands the book's publisher, Penguin, will be amending the inaccuracy in future editions of the book.
Fer í mál við stjórnvöld ef til hvalveiðibanns kemur
📅 22.09.2026 👁️ 1
Fer í mál við stjórnvöld ef til hvalveiðibanns kemur
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segist stefna íslenska ríkinu fyrir dómstóla verði hvalveiðibanni komið á. Frumvarp þess efnis verður lagt fra...
Geta ekki tekið inn börn sökum manneklu
📅 22.09.2026 👁️ 2
Geta ekki tekið inn börn sökum manneklu
Fjölskylduráð Múlaþings ákvað á dögunum að hækka heimgreiðslur til foreldra úr 52.153 krónur á mánuði í 104.500 krónur. Þetta er gert til þess að mæta...
'Looksmaxxing' influencer 'Clavicular' charged with rape in Massachusetts
📅 22.09.2026 👁️ 1
'Looksmaxxing' influencer 'Clavicular' charged with rape in Massachusetts
Authorities allege Braden Peters drugged a woman before assaulting her in May. He denies the charges.
Dánarorsök Hayden Panettiere opinberuð
📅 22.09.2026 👁️ 1
Dánarorsök Hayden Panettiere opinberuð
Dánarorsök bandarísku leikkonunnar Hayden Panettiere liggur nú fyrir, rúmum mánuði eftir að hún fannst látin í íbúð í Greenville í Suður-Karólínu. Hún...
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Eyðsla eða fjárfesting
📅 22.09.2026 👁️ 1
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Eyðsla eða fjárfesting
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Er fjármunum sem varið er til velferðar og geðheilbrigðismála óþarfa eyðsla eða fjárfesting?Fjármálaráð hefur ...
Tveir enn í gæsluvarðhaldi vegna manndráps í Vallargerði
📅 22.09.2026 👁️ 2
Tveir enn í gæsluvarðhaldi vegna manndráps í Vallargerði
Tveir pólskir menn eru enn í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á manndrápi í Vallargerði þann 9. ágúst. Mennirnir voru áður í gæsluvarðhaldi er...
Jóhannes Haukur segist hafa fagnað samtali áður en appið kom til: „Hvað eyðir Reykjavíkurborg í þetta?“
📅 22.09.2026 👁️ 1
Jóhannes Haukur segist hafa fagnað samtali áður en appið kom til: „Hvað eyðir Reykjavíkurborg í þetta?“
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson vakti á sunnudag athygli á appinu Læsir, sem heldur utan um heimalestur dóttur hans og annarra nemenda. Segir ha...
Umburðarlyndi músliminn
📅 22.09.2026 👁️ 1
Umburðarlyndi músliminn
Umburðarlyndi músliminn Fréttin22. september 2026Erlent, TrúmálLeave a Comment Breski biskupinn Sarah Mullally er fyrsta konan til að gegna leiðtogahl...
Breyttu úrskurði um nokkur atkvæði
📅 22.09.2026 👁️ 1
Breyttu úrskurði um nokkur atkvæði
Landskjörstjórn hefur tilkynnt um endanlega niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem haldin var 29. ágúst.Þetta...
Hvers vegna hræðast þau Miðflokkinn?
📅 22.09.2026 👁️ 1
Hvers vegna hræðast þau Miðflokkinn?
Hvers vegna hræðast þau Miðflokkinn? Fréttin22. september 2026Innlent, Júlíus Valsson, StjórnmálLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Í þingflokkshe...
Inquest opens into 'Putney Pusher' suspect's death
📅 22.09.2026 👁️ 1
Inquest opens into 'Putney Pusher' suspect's death
Nicholas Brandram, who was suspected of pushing a woman into the path of a bus, was found dead last week.
Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar - Vísir
Nefndin kallaði á fundi sínum í gær eftir upplýsingum frá velferðarsviði borgarinnar um fjárhagsaðstoð frá og með árinu 2016. Hún vill fá upplýsingar ...
Prentmet Oddi tekur yfir rekstur Héraðsprents og útgáfu Dagskrárinnar
📅 22.09.2026 👁️ 1
Prentmet Oddi tekur yfir rekstur Héraðsprents og útgáfu Dagskrárinnar
Prentmet Oddi tilkynnti í dag um að þeir hefðu tekið yfir rekstur Héraðsprents á Egilsstöðum. Héraðsprent var stofnað árið 1972 og hefur því verið sta...
Þjóðvegur 1 lokaður á kafla í Borgarfirði í nótt
📅 22.09.2026 👁️ 2
Þjóðvegur 1 lokaður á kafla í Borgarfirði í nótt
Þjóðvegur 1 verður lokaður á kafla í Melasveit í Borgarfirði frá tíu í kvöld til klukkan átta í fyrramálið. Hringveginum verður lokað vegna ræsagerðar...
Autopsy shows Hayden Panettiere died from overdose of fentanyl and other drugs
📅 22.09.2026 👁️ 1
Autopsy shows Hayden Panettiere died from overdose of fentanyl and other drugs
The death of the child star - who had fentanyl, Xanax, a muscle relaxant and antipsychotic medication in her system - was ruled an accident.
Í leyfi á meðan kosninga­svik eru til rann­sóknar - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Í leyfi á meðan kosninga­svik eru til rann­sóknar - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka nú kæru vegna þingkosninganna sem fóru fram á sunnudag fyrir rúmri viku. Kjósendur í Dölunum í Norður-Svíþjóð eru sagðir hafa ...
Suspected drug dealer arrested after police seize 4 kilos of cocaine in Lanzarote
📅 22.09.2026 👁️ 1
Suspected drug dealer arrested after police seize 4 kilos of cocaine in Lanzarote
A man has been remanded in custody after police seized around four kilos of cocaine and €25,000 in cash during a major drugs operation in Lanzarote.Na...
Police seize 4kg of cocaine and find €25,000 hidden in a freezer
📅 22.09.2026 👁️ 1
Police seize 4kg of cocaine and find €25,000 hidden in a freezer
Police in Lanzarote have seized approximately four kilograms of cocaine and €25,000 in cash during an operation targeting the distribution of the drug...
Aðalatriði varnarsamkomulags um Grænland frá 1951
📅 22.09.2026 👁️ 2
Aðalatriði varnarsamkomulags um Grænland frá 1951
Nýtt varnarsamkomulag á milli Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna verður undirritað í dag þegar Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-...
Tim Westwood charged with two more sexual offences
📅 22.09.2026 👁️ 1
Tim Westwood charged with two more sexual offences
The alleged sexual offences date back to 1991 and 2004.
Bein út­sending: Ræða Trumps á alls­herjar­þinginu - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Ræða Trumps á alls­herjar­þinginu - Vísir
Mikil ólga er nú innan Sameinuðu þjóðanna, eins og víða um heiminn allan. Þá eru einnig uppi spurningar um framtíð Sameinuðu þjóðanna, þar sem Trump h...
Búast við að aflýsa öllu morgunflugi í kvöld
📅 22.09.2026 👁️ 1
Búast við að aflýsa öllu morgunflugi í kvöld
Um eitt þúsund farþegar Icelandair sem eiga að fljúga frá Bandaríkjunum til Evrópu í kvöld, með millilendingu á Íslandi, verða endurbókaðir í flug með...
Lýkur nú „skaðlegum kafla“ í farsælu samstarfi?
📅 22.09.2026 👁️ 2
Lýkur nú „skaðlegum kafla“ í farsælu samstarfi?
Þeir stjórnmála- og embættismenn sem hafa séð samninginn sem verður undirritaður í dag hafa haldið spilunum þétt að sér. Það eina sem smitast hefur út...
Trump staðfestir að Bandaríkin vilji tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi
📅 22.09.2026 👁️ 1
Trump staðfestir að Bandaríkin vilji tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi
Donald Trump hefur nú lokið máli sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Nú ætti hann að fara að gera sig kláran til að hitta Dani og Grænlendinga ...
Nielsen: „Win-win-win samningur“
📅 22.09.2026 👁️ 2
Nielsen: „Win-win-win samningur“
Dönsk stjórnvöld hafa birt samninginn á heimasíðu sinni.Hér má nálgast hann.Donald Trump var spurður, eftir undirritunina, hvort hann væri búinn að le...
Bandaríkin fá að koma upp tveimur nýjum herstöðvum og stækka Pituffik
📅 22.09.2026 👁️ 2
Bandaríkin fá að koma upp tveimur nýjum herstöðvum og stækka Pituffik
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, er að vonum ánægður með áfangann í dag. „Þetta var krefjandi vegferð. En hér erum við – með samning...
Voru með mikið reiðufé í farangrinum
📅 22.09.2026 👁️ 1
Voru með mikið reiðufé í farangrinum
Tveir erlendir menn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir peningaþvætti. Mennirnir eru með íslenskar kennitölur og eru skráðir til heimilis að Smiðs...