Borið hefur á því að falskir Facebook-reikningar hafi verið notaðir til að taka þátt í umræðum um stjórnmál hér á landi.
Nokkrir slíkir virðast hafa verið stofnaðir í þeim tilgangi að lofsama Viðreisn en framkvæmdastjóri flokksins fordæmir þessa iðju og segir umrædda reikninga ekki tengjast Viðreisn á neinn hátt.
Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag en meðal þeirra sem vakið hafa athygli á þessu er til dæmis Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður og fyrrverandi forsætisráðherra.
Reikningarnir eiga það sameiginlegt að bera íslensk nöfn en eru engu að síður augljóslega falsaðir. Myndum virðist hafa verið stolið af íslenskum Instagram-reikningum en eins og sést á meðfylgjandi skjáskotum er íslenskan ekki alveg fullkomin og orðalagið stundum skrýtið:
„Hún er móðir okkar. Faðir okkar. Allt okkar.“
„Hún er harður, en sanngjarn. Nákvæmlega það sem við þurfum.“
„Ég trúi Þorgerði meira en prestinum mínum.“
Facebook-síðan Ég segi nei við ESB hefur til dæmis orðið fyrir barðinu á þessum fölsku reikningum og segir umsjónarmaður síðunnar í viðtali við Morgunblaðið að flestir þessara reikninga hafi verið stofnaðir á tímabilinu frá nóvember og fram í febrúar.
Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, segir flokkinn vita af málinu og hann fordæmi þessa iðju.
„Umrædd gervimenni eru ekki tengd Viðreisn og flokkurinn hefur lagt sig fram um að leita skýringa á því hvaðan þau koma. Við tökum hættu á upplýsingaóreiðu mjög alvarlega og höfum óskað eftir því við þar til bær yfirvöld að þau kanni þetta nánar,“ segir hún við blaðið.
Hún bætir við að dæmi frá öðrum ríkjum sýni að gervimenni sem þessi séu notuð til að skapa óreiðu.
„Markmiðið með slíkum gervimennum er að skapa sundrung í samfélaginu og ýta undir tortryggni,“ segir Svanborg og bætir við að mikilvægt sé að stjórnmálaflokkar, hagsmunasamtök og fjölmiðlar taki höndum saman og upplýsi um hættuna á þessari upplýsingaóreiðu.