Birgitta Ósk er 23 ára Eyrbekkingur, fædd og uppalin á staðnum. Birgitta var að gefa út sína fyrstu ljóðabók með ljóðum eftir sjálfa sig en bókin heitir „Þegar allt er kyrrt“. Eftir sumarið flytur Birgitta til Danmerkur þar sem hún mun hefja nám í íþróttalýðháskóla. Bókin er því líka hluti af fjáröflun fyrir þetta nýja ævintýri hennar.
„Ég var búin að vera að skrifa rosalega lengi og hef verið að safna þeim saman en svo fór ég í FSu og kláraði þá hestabrautina og stúdentsbrautina og hluta af náttúrufræðibrautinni og þá vantaði mig eitthvað að gera þannig að ég fór að skrifa og þá endaði ég með að fara í sjúkraliðanám og kláraði sjúkraliðann þannig að það var svolítið mikið að gera,” segir Birgitta Ósk.
18 frumsamin ljóð eru í nýju bókinni.
„Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að skrifa þessa bók var til þess að tjá tilfinningar mínar og hvernig ég var að upplifa lífið og hvernig mér leið,” bætir Birgitta við.
Og þú ert að fá miklar og góðar viðtökur við bókinni eða hvað?
„Já, fólk er búið að vera að sýna bókinni áhuga og sérstaklega ættingjar og allir eru mjög tilbúnir að styrkja mig og styðja og svona, það er bara gaman að því.“
Birgitta býr hjá foreldrum sínum og hefur aðstoðað móður sína en hún glímir við hrörnunarsjúkdóm.
„Hún stendur sig alveg ótrúlega vel í lífinu öllu og það að gefa þessa ljóðabók út, það bara sýnir hvað hún er ótrúlega flott stelpa,” segir Þóra Ósk Guðjónsdóttir móðir Birgittu.