Fimmtán manna sendinefnd Evrópuráðsins kemur til Íslands á morgun til að fylgjast með sveitarstjórnarkosningunum á laugardag. Nefndinni verður skipt í sjö hópa á laugardag sem fara vítt og breitt um landið og fylgjast með því sem fram fer á kjörstöðum.
Sendinefndin verður hér frá miðvikudegi til sunnudags og skilar af sér skýrslu um framkvæmd kosninganna. Auk þess að fara á kjörstaði ræða nefndarmenn við embættismenn og fulltrúa félagasamtaka.
Landskjörstjórn segist í tilkynningu fagna komu kosningaeftirlitsmannanna og telur að heimsóknir sem þessar skapi mikilvægan lærdóm.
Fréttin var uppfærð með viðbrögðum landskjörstjórnar.