Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti fyrr í dag ályktun þess efnis að Bandaríkjaher skuli draga til baka allan herafla úr stríðinu í Íran. Ályktunin var samþykkt með 215 atkvæðum gegn 208. Fjórir þingmenn Repúblikanaflokksins kusu með ályktuninni.
Ályktunin er þó að mestu táknræn þar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti getur beitt neitunarvaldi gegn henni, verði hún samþykkt í öldungadeild þingsins. Samþykkt ályktunarinnar verður þó að teljast mikið högg fyrir Trump. Þetta er í fyrsta skipti sem fulltrúadeildin, með Repúblikana í meirihluta, samþykkir aðgerðir sem neyða eiga Trump til að draga úr umsvifum hersins gegn Íran síðan stríðið hófst.
Halda því fram að stríðinu sé lokið
Stjórn Trumps hefur haldið því fram að stríðinu við Íran sé lokið, þó árásir haldi áfram. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að markmið hernaðaraðgerðarinnar Epic Fury hafi verið að eyðileggja varnarinnviði Írana og ganga verulega á vopnabúr þeirra, þá sérstaklega eldflaugar og dróna. Þessum markmiðum hafi verið náð auk eyðileggingar bæði loft- og sjóhers þeirra.
Demókratar benda á að átök séu enn í fullum gangi. Fyrr í dag gerði Íransher árás á alþjóðaflugvöllinn í Kúveit þar sem einn dó og 63 særðust.
„Þú getur breytt nafninu á aðgerðinni en það breytir því ekki að [Hormús] sundið er enn lokað og heraflinn okkar er allur enn þá í hættu,“ sagði Sara Jacobs, fulltrúadeildarþingmaður Kaliforníu.
Ber ekki saman um árangur friðarviðræðna
Donald Trump segir friðarviðræður við Íran ganga „mjög vel“ og að þær gætu borið árangur um helgina. Annað er að heyra úr ranni Írana. Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir að þó að virkt samtal sé í gangi sé enginn áþreifanlegur árangur í viðræðum um stríðslok.